Golf

Guðrún Brá Íslandsmeistari í fyrsta skipti

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðrún Brá kláraði hringinn í dag á fugli og fagnaði Íslandsmeistaratitli
Guðrún Brá kláraði hringinn í dag á fugli og fagnaði Íslandsmeistaratitli mynd/golf.is
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er Íslandsmeistari kvenna í golf. Hún vann öruggan sigur á Íslandsmótinu sem fram fór í Vestmannaeyjum í helgina.

Þetta er hennar fyrsti Íslandsmeistaratitill, Valdís Þóra Jónsdóttir varð Íslandsmeistari í fyrra en hún var ekki á meðal þáttakanda í Eyjum.

Sigur Guðrúnar var mjög öruggur en hún var 11 höggum á undan Sögu Traustadóttur sem lenti í öðru sæti. Helga Kristín Einarsdóttir varð þriðja.

Guðrún fór hringinn í dag á höggi yfir pari og var samtals á átta höggum yfir pari í mótinu. Guðrún er úr Golfklúbbnum Keili.







Lokastaðanskjáskot/golf.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×