Lífið

Haukur Harðar lýsir úrslitaleiknum

Benedikt Bóas skrifar
Haukur Harðarson og Guðmundur Benediktsson hafa skilað mótinu heim í stofu landsmanna með sóma. Guðmundur sest á bekkinn eftir undanúrslitin en hann er þekktasti íþróttalýsir landsins fyrr og síðar
Haukur Harðarson og Guðmundur Benediktsson hafa skilað mótinu heim í stofu landsmanna með sóma. Guðmundur sest á bekkinn eftir undanúrslitin en hann er þekktasti íþróttalýsir landsins fyrr og síðar Vísir/Getty
Haukur Harðarson mun lýsa úrslitaleiknum á Heimsmeistaramótinu í fótbolta. Bjarni Guðjónsson mun lýsa með honum en gestastofan yfir úrslitaleiknum er í örlitlu limbói því Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið boðið hlutverk knattspyrnuspekings erlendis.

Eiður hefur staðið sig vel sem knattspyrnuspekingur og talar auk þess fjölmörg tungumál reiprennandi. Það kemur því ekki á óvart að erlendar stöðvar falist eftir kröftum hans. Haukur segist stoltur af því að fá að lýsa úrslitaleiknum og segir að undirbúningur sé mótið sjálft.

„Maður hefur horft á hvern einasta leik og maður trúir varla að maður sé í vinnunni, þetta er búið að vera það skemmtilegt. Ég hef stundum sagt að þetta sé eins og að læra undir próf í fagi sem maður kann mikið um fyrir. Það þarf að kafa svolítið djúpt og vera með fullt af punktum og fróðleik sem maður notar ekki nema að litlum hluta. Ég er yfirleitt með fleiri punkta en ég sé fram á að nota.“

Bjarni og Haukur hafa áður lýst saman og myndað gott lýsingarteymi. „Með þessu er verið að stækka útsendinguna og gera hana hátíðlegri.“

Haukur segir að hann muni vera mættur til vinnu snemma á sunnudag til að undirbúa sig sem best fyrir leikinn. „Ég held að ég fari í heita sturtu og fái mér jafnvel te með hunangi, eitthvað sem ég geri aldrei. Aðeins að mýkja röddina. Álagsmeiðslin koma víða fram,“ segir hann og hlær.

Hauki er boðið í brúðkaup á laugardag og ætlar hann að haga sér vel. Vera kominn snemma heim enda ekki í boði að mæta illa fyrirkallaður í svona útsendingu. „Ég verð rólegur og á bíl,“ segir hann.


Tengdar fréttir

Færeyingar fá Gumma Ben í stað Dana

Flestir Færeyingar halda með Íslandi á yfirstandandi heimsmeistaramóti. Fjöldi manns horfir á leikinn á útiskjá í Þórshöfn. Danskir lýsendur þóttu leiðinlegir og verður skipt út í dag. Færeyingar gætu átt raunhæfan séns á að verða fámennasta þjóð til að komast á stórmót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×