Lífið

Háloftaástarsaga í beinni orðin að deilum um persónuvernd og kynbundna áreitni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Rosey Blair fylgdist grannt með. Hún og kærasti hennar Houston Hardaway hafa nú verið harðlega gagnrýnd fyrir athæfið.
Rosey Blair fylgdist grannt með. Hún og kærasti hennar Houston Hardaway hafa nú verið harðlega gagnrýnd fyrir athæfið.
Bandarískt par sem komst í heimsfréttirnar eftir að hafa tíst samskiptum tveggja flugfarþega í beinni hefur nú verið harðlega gagnrýnt fyrir deilinguna. Twitter-notendur hafa margir vakið máls á því að með því að birta myndir af fólkinu og brot úr samræðum þess hafi parið brotið á friðhelgi einkalífsins og opnað fyrir áreitni gegn konunni.

Vísir fjallaði um málið í síðustu viku en atburðarásin var á þá leið að leikkonan Rosey Blair var á heimleið ásamt kærasta sínum, Houston Hardaway, um borð í flugvél í Bandaríkjunum. Þar varð ung kona við bón hennar um að skipta um sæti svo Blair gæti setið með kærastanum. Ungur maður settist við hlið konunnar og fylgdust Blair og Hardaway  náið með samskiptum fólksins.

Sjá einnig: Twitter sprakk vegna tísta í beinni frá lygilegri atburðarás eftir sætaskipti í flugvél

Tíst hennar vöktu gríðarlega athygli og ekki leið á löngu þar til ungi maðurinn var nafngreindur sem fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Euan Holden. Hann hefur sjálfur tjáð sig um málið og þykir það allt hið skemmtilegasta.

Unga konan gaf hins vegar ekki leyfi fyrir því að nafn hennar yrði gefið út, og hefur Holden sjálfur hvatt netverja til að láta konuna í friði. Blair og Hardaway sögðust þó sjálf viss um að forvitnir samfélagsmiðlanotendur væru nógu „lævísir“ til að hafa uppi á henni, að því er fram kemur í myndbandi sem parið deildi á Twitter.

Síðustu daga hafa netverjar þó greint frá því að umrædd kona hafi orðið fyrir svo mikilli áreitni að hún neyddist til að eyða Instagram-reikningi sínum. Þá hafi persónulegum upplýsingum um hana verið lekið á Internetið, sem hún kærði sig ekki um.

Í kjölfar þess hefur umræða um óábyrga og ónærgætna hegðun Blair og Hadaway sprottið upp á samfélagsmiðlum. Parið hefur verið sagt „hrollvekjandi“ og það beðið um að hætta að vekja athygli á málinu.

Þá hafa tíst Blair verið sett í samhengi við almenna umræðu um persónuvernd á tækniöld og enn fremur hvernig Internetið fer óblíðari höndum um konur en karla.

Blair hefur sjálf brugðist óbeint við gagnrýninni á Instagram-reikningi sínum. Þar flokkaði hún tíst sín sem „undarlega tegund af blaðamennsku“ og minntist á eigin erfiðleika í ástarlífinu.



 
My name is Rosey. Kinda funny now that it rhymes with Nosey. I love love. Earnestly. My favorite film is You've Got Mail (or easily any other of the Nora Ephron hits) and I believe in the possibility of magic in the minutiae of everyday life. Because of this belief, I wear a great deal of many hats. Blogger, writer, actor, photographer and now I suppose, some strange variety of journalist. I saw a story unfolding in front of my eyes recently and it filled me with the hope of possibility. A lot of people dismiss the idea of love at first sight because it's a little schmaltzy, silly and perhaps cliche. My perspective is this: open your eyes up to possibility and you may see it all around you. One of my favorite life mantras when struck with the thought of “why is this happening to me” is to instead consider asking yourself “why is this happening FOR me”. It's going to be strange to continue on the story of myself I've been documenting on my own social media and but I'll try to do it a little for you today. I am a plus size woman and for years I believed dating and love were experiences that simply wouldn't happen for me. I was proved wrong. I had (and very truthfully still have) quite a few chips on my shoulder but experiencing a love free from judgement has changed my life. This love came from myself and also my beautiful boyfriend. I hope that many of you are inspired by the story I shared. Sharing this story has also made me reconsider some of the thoughts of negativity I too have been guilty of putting out into the world. If you have been feeling low, I hope you are reinvigorated to serve yourself and those around you some much needed cheerfulness. I'll be attempting to do the same. If you need me for some laughs, and some inspiration - I'll be here doing my silly thing. by @lydiahudgens

A post shared by Rosey (@roseybeeme) on Jul 5, 2018 at 6:29am PDT


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×