Lífið

Kylie Jenner lét fjarlægja hinar frægu varafyllingar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kylie Jenner á MET-galakvöldverðinum í maí síðastliðnum. Þarna voru varafyllingarnar enn á sínum stað.
Kylie Jenner á MET-galakvöldverðinum í maí síðastliðnum. Þarna voru varafyllingarnar enn á sínum stað. Vísir/Getty
Athafnakonan Kylie Jenner hefur látið fjarlægja fyllingar úr vörum sínum. Ákvörðun Jenner hefur vakið mikla athygli þar eð þykkar varir hafa löngum verið órjúfanlegur hluti af vörumerki hennar.

Skjáskot af athugasemd Jenner.Skjáskot/Instagram
Jenner greindi frá þessu í athugasemd við Instagram-mynd sem hún birti í fyrradag. Þar svaraði hún notanda, sem sagði Jenner líkjast sjálfri sér á yngri árum á myndinni.

„Ég losaði mig við allar fyllingarnar,“ skrifaði Jenner en hún lét fylla í varir sínar fyrir nokkrum árum, þar eð hún hafði alltaf verið óánægð með náttúrulegu varir sínar. Þær hefur Jenner ætíð sagt vera of þunnar og átti hún í miklum erfiðleikum með að viðurkenna að hún hefði látið fylla í þær á sínum tíma.

Þá minntist Jenner á varir sínar í nýju myndbandi þar sem hún sat fyrir svörum í ásamt vinkonu sinni, Jordyn Woods.

Í myndbandi sagðist Jenner hafa haft áhyggjur af því að frumburður hennar, Stormi, sem fæddist í febrúar síðastliðnum, myndi erfa þunnar varirnar. Þær áhyggjur hafi þó verið óþarfar þar sem Stormi skarti þykkum vörum föður síns, rapparans Travis Scott.

Eins og áður sagði hefur Jenner verið þekkt fyrir þykkar og fylltar varir. Hún kom til að  mynda á fót snyrtivöruveldi í kringum varaliti, sem hún auglýsti jafnan með því að smyrja á þykkar varir sínar á Instagram.

Varir Jenner voru einnig uppspretta svokallaðrar Kylie Jenner-áskorunar þar sem konur settu flöskur eða glös utan um varir sínar. Þannig varð þrýstingurinn til þess að varir þeirra bólgnuðu jafnan upp, með afar misjöfnum árangri.


Tengdar fréttir

Kylie Jenner orðin mamma

Ruanveruleikastjarna er loksins búin að staðfesta orðróminn og sagði sjálf frá gleðifregnunum á Instagram.

Dýrt tíst frá Kylie Jenner

Gengi bréfa í tæknifyrirtækinu Snap hrundi í gær eftir að raunveruleikastjarnan Kylie Jenner fór ófögrum orðum um nýjustu uppfærsluna á samfélagsmiðlinum Snapchat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×