Viðskipti innlent

Gámaþjónustan er metin á þrjá milljarða króna í bókum SÍA III

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
SÍA III keypti fyrirtækið ásamt tveimur fjárfestum
SÍA III keypti fyrirtækið ásamt tveimur fjárfestum Vísir/ernir
Gámaþjónustan er metin á þrjá milljarða króna í bókum framtakssjóðsins SÍA III sem er í stýringu Arion banka. Sjóðurinn á 65 prósenta hlut í fyrirtækinu sem metinn er á 1,9 milljarða króna á móti Einari Erni Ólafssyni, fyrrverandi forstjóra Skeljungs og fjölskyldunni sem á heildsöluna Nathan & Olsen.

Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, stýrir fjárfestingum hennar og tengist henni fjölskylduböndum. Miðað við það er samanlagður hlutur þeirra metinn á um milljarð. Sjóðurinn, sem er 13 milljarðar að stærð, hefur einnig fjárfest í fimm stjörnu hótelinu Edition sem verið er að reisa við Hörpu.

Sjóðurinn er skuldbundinn til að leggja fram 16 milljónir dollara, jafnvirði 1,7 milljarða króna, til verkefnisins og hafði við árslok lagt fram 5,3 milljónir dollara. Sjóðurinn á óbeint um fjórðungshlut í hótelinu. Þetta má lesa úr ársreikningi fyrir árið 2017.

SÍA III hafði einungis nýtt um 2,3 milljarða af 13 milljarða fjárfestingarloforðum við árslok. Einungis einn einkafjárfestir hefur lagt sjóðnum til fé, það er Stormtré með 0,19 prósenta hlut. Stormtré er að mestu í eigu Hreggviðs Jónssonar, aðaleiganda Veritas Capital sem meðal annars á Vistor. Stefnir þáði 215 milljónir króna í þóknun fyrir rekstur sjóðsins í fyrra samanborið við 102 milljónir árið áður


Tengdar fréttir

Hótelið er orðið verðmætara en áður var talið

Richard L. Friedman, aðaleigandi bandaríska fasteignaþróunarfélagsins Carpenter & Company, segir að hluthafar hafi ákveðið að leggja frekara fjármagn í byggingu fimm stjörnu hótels við Hörpu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×