Sport

Ótrúleg endurkoma þegar konungur grassins var sendur heim

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Anderson fagnar sigri en Federer heldur heim fyrr en reiknað var með.
Anderson fagnar sigri en Federer heldur heim fyrr en reiknað var með. Vísir/Getty
Kevin Anderson kom öllum á óvart með því að leggja Roger Federer að velli í átta liða úrslitunum á Wimbledon í steikjandi hita í London í dag. Suður-Afríkumaðurinn, sem er í sjöunda sæti heimslistans, var 2-0 undir eftir tvö sett en sneri við blaðinu á ótrúlegan hátt og landaði sigri í leik sem tók á fimmtu klukkustund að spila.

Federer virtist með allt í hendi sér að loknum tveimur settum. Svisslendingurinn vann fyrsta settið 6-2 og hafði svo 7-6 sigur í öðru setti. Hörkuleikur en enginn sem átti von á því sem framundan var. 

Anderson vann næstu tvö sett 7-5 og 6-4 og gerðu uppgjafir hans Federer erfitt fyrir. Federer fékk eitt tækifæri til að tryggja sér sigur í leiknum en Anderson stóðst áhlaupið og framundan var fimmta og síðasta sett.

Æsispennandi oddasett

Í fimmta setti er ekki spiluð oddalota heldur framlengt þangað til annar nær tveggja lotna forystu. Síðasta settið tók tæplega 100 mínútur og hafði Anderson sigur 13-11. Anderson hefur aðeins einu sinni áður sigrað keppinaut í efstu fimm sætum styrkleikalistans á risamóti.



Federer hefur jafnan verið kallaður konungur grassins og voru áhorfendur á bandi Svisslendingsins. Það dugði ekki til en fagnaðarlætin í lokin, yfir óvæntum sigri Anderson, voru heldur dræm. Fólk var vonsvikið að sjá áttfaldan Wimbledon-meistara úr leik en hinn 36 ára gamli átti titil að verja.

Federer hefur ekki tapað á risamóti eftir að hafa komist tveimur settum yfir síðan gegn Novak Djokovic í undanúrslitum Opna bandaríska árið 2011.


„Að hafa sigrað Roger Federer á Wimbledon í svona jöfnum leik er eitthvað sem ég mun seint gleyma,“ sagði Anderson í viðtali eftir leikinn. Hann hafi aldrei gefist upp og haldið í vonina.

„Ég hélt áfram að segja mér að halda í trúna. Dagurinn í dag yrði minn dagur. Þú þarft að hugsa þannig gegn manni eins og Roger. Ég gaf allt í þetta og er í skýjunum að hafa komist í gegnum þetta.“

Hann var eðlilega stoltur af sjálfum sér.

Nýtur sigursins í einn dag

„Þetta var frábær frammistaða af minni hálfu. Markmiðið fyrir vikuna var að komast skrefi lengra en mér hefur tekist áður. Ég er auðvitað í skýjunum og stefni á að spila á sunnudaginn. En fyrst þarf ég að jafna mig og spila á föstudaginn,“ sagði Anderson.

„Ég leyfi mér að njóta sigursins í dag. En verð að jafna mig og vonandi á ég tvo leiki eftir.“

Undanúrslitin fara fram á föstudaginn og úrslitaleikurinn á sunnudaginn. Mótið er sýnt á Eurosport en nú stendur yfir leikur Rafael Nadal og Juan Martín Del Potro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×