Lífið

Ópin reyndust vera frygðarstunur

Benedikt Bóas skrifar
Parið skemmti sér trúlega vel þó að nágrönnunum hafi ekki verið skemmt. Fannst hljóðin heldur há og mikil.
Parið skemmti sér trúlega vel þó að nágrönnunum hafi ekki verið skemmt. Fannst hljóðin heldur há og mikil.
„Maðurinn var bara að stunda kynlíf,“ segir stjórnarmaður í íþróttafélagi hér á landi en stjórn félagsins boðaði leikmanninn á fund því ótrúlegur hávaði barst úr íbúð hans, yfirleitt seint að kveldi. Stunur og dynkir.

Óttuðust stjórnarmenn jafnvel að leikmaðurinn hefði gerst sekur um heimilisofbeldi en það var einn stór misskilningur. Hávaðinn og lætin voru slík við iðju mannsins og konu að nágrönnum hans stóð ekki á sama. Létu þeir stjórnarmenn félagsins vita og báðu þá um að taka á málinu.

Leikmaðurinn er vel metinn innan félagsins og kom þetta flatt upp stjórnarmennina. Þeir boðuðu leikmanninn á fund þar sem farið var yfir málin og kvartanir gagnvart honum. Leikmaðurinn kom af fjöllum þar sem ekkert ofbeldi hafi átt sér stað. Eftir örlitlar útskýringar kom hið sanna í ljós.

Rúmið lamdist fast í vegginn, stunurnar voru háværar og úthaldið var slíkt hjá leikmanninum að nágrannarnir trúðu vart sínum eigin eyrum.

„Ég var aðeins að stunda kynlíf,“ sagði leikmaðurinn á fundinum samkvæmt stjórnarmanninum og gátu stjórnarmenn lítið annað en brosað út í annað.

Honum var því sleppt með áminningu gegn loforði um að festa rúmið og minnka stunurnar – til að fullnægja kröfum nágrannanna.

Kynlíf stoppaði tennisleik

Tennisköppum og áhorfendum brá heldur í brún í Sarasota í Flórída í fyrra þegar háværar stunur ómuðu yfir tennisvöll þar sem þeir Frances Tiafoe og Mitchell Krueger öttu kappi. Í fyrstu hélt lýsandi viðureignarinnar að einhver á áhorfendapöllunum hefði verið að horfa á klám í síma sínum, en í ljós kom að óhljóðin komu úr nærliggjandi íbúð.

Tiafoe var að fara að gefa á Krueger þegar hljóðin heyrðust fyrst og stöðvaði hann leikinn um stund með bros á vör. Áhorfendur hlógu og leikurinn hélt áfram, bæði á vellinum og inni í svefnherberginu því skömmu síðar heyrðust hljóðin aftur. Kallaði Tiafoe þá: „Þetta getur ekki verið svona gott,“ við mikinn fögnuð áhorfenda.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×