Erlent

Tvöfalda sekt vegna sölu á sígarettum

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Danir vilja herða refsingar vegna sölu á sígarettum til barna.
Danir vilja herða refsingar vegna sölu á sígarettum til barna. Vísir/Getty
Dönsk stjórnvöld vilja tvöfalda upphæð þeirrar sektar sem verslunareigendum er gert að greiða þegar þeir hafa gerst sekir um að selja unglingum yngri en 18 ára sígarettur.

Framvegis á sektin að hljóða upp á 10 þúsund danskar krónur, eða tæpar 170 þúsund íslenskar krónur, í fyrsta sinn þegar menn verða uppvísir að því að selja unglingum sígarettur.

Brjóti menn lögin aftur á sektin að vera 20 þúsund danskar krónur en 40 þúsund danskar krónur í þriðja sinn, að því er segir í frétt danska ríkisútvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×