Golf

Ólafía Þórunn einu höggi undir pari eftir fyrsta hring

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er á einu höggi undir pari eftir fyrsta hring á Marathon Classic mótinu sem hófst í Ohio í Bandaríkjunum í gær.

Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni.

Ólafía fékk tvo fugla á fyrsta hring en einn skolla og paraði hinar fimmtán holurnar sem skilar henni jafnri í 43.sæti eftir fyrsta daginn.

Annar hringur verður leikinn í dag en 70 efstu kylfingarnir að honum loknum komast áfram og leiki seinni tvo dagana.

Hin tælenska Thidapa Suwannapura trónir á toppnum eftir fyrsta hring á sex höggum undir pari en í humátt á eftir henni koma einir sjö kylfingar á fimm höggum undir pari.

Sýnt er frá mótinu á Stöð 2 Sport 4 og hefst útsending dagsins klukkan 20:30 í kvöld.

Skorkort fyrsta hrings ÓlafíuSkjáskot/LPGA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×