Fótbolti

Sjáðu Ronaldo syngjandi glaðan við komuna til Juve

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Fjöldi fólks safnaðist saman til að sjá Ronaldo mæta í höfuðstöðvar Juventus í morgun
Fjöldi fólks safnaðist saman til að sjá Ronaldo mæta í höfuðstöðvar Juventus í morgun vísir/getty
Besti knattspyrnumaður heims undanfarin tvö ár, Cristiano Ronaldo, verður kynntur til sögunnar sem nýr leikmaður ítalska stórliðsins Juventus innan skamms.

Þegar þessi frétt er skrifuð er Ronaldo í læknisskoðun í höfuðstöðvum Juventus en þangað mætti hann í morgun að viðstöddu fjölmenni.

Stuðningsmenn ítalska liðsins vissu vel af komu kappans og tóku vel á móti honum þegar hann mætti á svæðið eins og sjá má á myndbandi hér fyrir neðan. 

Stemningin virðist hafa náð vel til Portúgalans sem mætti syngjandi glaður inn í höfuðstöðvar Juventus eins og sjá má neðst í fréttinni.

Ronaldo er á leiðinni að verða dýrasti leikmaður í sögu Ítalíumeistaranna og um leið dýrasti leikmaður í sögu ítalska boltans en Juventus borgar 105 milljónir punda til Real Madrid fyrir þennan þrefalda Englandsmeistara, tvöfalda Spánarmeistara sem hefur einnig unnið Meistaradeild Evrópu fimm sinnum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×