Golf

Haraldur byrjar snemma á Opna breska

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Haraldur Franklín Magnús.
Haraldur Franklín Magnús. Vísir/Getty
Haraldur Franklín Magnús hefur leik á Opna breska meistaramótinu í golfi á fimmtudag, fyrstur íslenskra karla. Hann leikur með þeim James Robinson og Zander Lombard á fyrsta hringnum.

Ráshópar og tímar fyrir fyrsta hringinn voru gefnir út í beinni útsendingu á Sky Sports í dag. Haraldur Franklín mun fara af stað klukkan 10:53 að staðartíma í Skotlandi, 9:53 að íslenskum tíma, á fimmtudagsmorgun.

Robinson er 29 ára Englendingur sem er að spila á Opna breska í fyrsta skipti, líkt og Haraldur Franklín. Robinson vann úrtökumót á St. Annes Old Links vellinum sem tryggði honum þáttökurétt.

Lombard er frá Suður-Afríku og er aðeins 23 ára. Hann hefur einu sinni tekið þátt á Opna breska, fyrir tveimur árum þegar spilað var á Royal Troon vellinum. Þá komst hann í gegnum niðurskurðinn og endaði í 66. sæti.

Tiger Woods mun hefja leik seint á fimmtudag, hann á rástíma klukkan 15:21 að staðartíma. Þeir Hideki Matsuyama og Russel Knox spila hringinn með Woods. Sigurvegari síðasta árs, Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth, leikur með Englendingnum Justin Rose og Kiradech Aphibarnrat frá Tælandi. Þeir fara af stað á undan okkar manni, klukkan 9:58 að staðartíma.

Alla rástíma má sjá á heimasíðu mótsins.

Opna breska meistaramótið er eitt af fjórum risamótunum í golfi ár hvert og er elst þeirra. Mótið var fyrst haldið árið 1860 og er mótið í ár það 147. í sögunni.

Vísir mun fylgjast vel með gangi mála hjá Haraldi og verður sýnt beint frá mótinu á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×