Erlent

Ein „skammarlegasta framkoma“ forseta Bandaríkjanna í manna minnum

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Vladimir Pútín.
Donald Trump og Vladimir Pútín. Vísir/AP
Blaðamannafundur Donald Trump og Vladimir Pútín, forseta Bandaríkjanna og Rússlands, þykir ekki hafa farið vel í Bandaríkjunum. Fjölmargir stjórnmálamenn beggja flokka Bandaríkjanna hafa gagnrýnt Trump harðlega og hefur hann jafnvel verið sakaður um landráð. Frammistaða Trump fékk þá sömuleiðis vægast sagt lélega einkunn hjá sérfræðingum og stjórnmálaskýrendum vestanhafs.

Forsetarnir funduðu í Helsinki í dag og fyrir fundinn hafði Trump farið fram á að þeir yrðu einungis tveir í herberginu ásamt túlkum. Þrátt fyrir að fundurinn hefði tafist um klukkustund ræddust þeir við í rúma tvo tíma.

Að þeim viðræðum loknum hittu þeir utanríkisráðherra ríkjanna tveggja ásamt öðrum embættismönnum í mjög síðbúnum hádegismat þar sem farið var yfir efni viðræðna forsetanna tveggja.

Þar á eftir héldu þeir svo sameiginlegan blaðamannafund.

Miðað við fyrstu viðbrögð virðist fólk mjög svo ósátt við að Trump hafi neitað að lýsa því yfir að Rússar hafi haft afskipti af forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016 og sagðist hann trúa orðum Pútín um að Rússar væru saklausir, frekar en niðurstöðum leyniþjónusta Bandaríkjanna og annara.

Hér má sjá samantekt AP fréttaveitunnar frá blaðamannafundinum.

Þingmaðurinn John McCain er einn þeirra sem fer hörðum orðum um frammistöðuTrump og segir hana vera eina þá skammarlegustu í manna minnum. Hann sagði Trump hafa valdið Bandaríkjunum miklum skaða með barnaskap sínum og hégóma, svo eitthvað sé nefnt.

„Trump reyndist ekki einungis ófær, heldur óviljugur í að standa í hárinu á Pútín. Þeir virtust tala eftir sama handritinu þar sem forsetinn tók þá meðvituðu ákvörðun að verja harðstjóra gegn sanngjörnum spurningum frjálsra fjölmiðla, og að veita Pútín vettvang til að spúa áróðri og lygum yfir heiminn,“ sagði McCain.

Hann sagði enn fremur að Trump hefði mistekist að standa vörð um Bandaríkin og að bandarískur forseti hafði aldrei áður lúffað svo fyrir harðstjóra.

Paul Ryan, leiðtogi meirihluta Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, sagði í yfirlýsingu að ljóst væri að Rússland hefði haft afskipti af forsetakosningum Bandaríkjanna og að ríkið væri að grafa undan lýðræði víða um heim. Það væri niðurstaða yfirvalda Bandaríkjanna.

„Forsetinn verður að átta sig á því að Rússar eru ekki bandamenn okkar,“ sagði Ryan. Hann bætti við að yfirvöld Bandaríkjanna yrðu að draga Rússland til ábyrgðar og stöðva árásir þeirra á lýðræðið.

John Brennan, fyrrverandi yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, er stóryrtur og segir aðgerðir Trump vera landráð gegn Bandaríkjunum. Hann segir ummæli Trump ekki einungis hafa verið „heimskuleg“ heldur sé alfarið ljóst að hann sé „í vasa“ Pútín.

Brennan beinir kalli sínu til meðlima Repúblikanaflokksins sem kalla sig föðurlandsvini og spyr: „Hvar eru þið?“

Jeff Flake, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins sem lengi hefur deilt við Trump, segist aldrei hafa átt von á því að sjá Bandaríkin á sviði með Forseta Rússlands, og kenna Bandaríkjunum um árásir Rússa.

Hann sagði blaðamannafundinn hafa verið skömmustulegan.

Þingmaðurinn Will Hurd, sem er fyrrverandi starfsmaður CIA og er í leyniþjónustunefnd þingsins, segir ljóst að það að vera sammála „fauta“ eins og Pútín feli ekki í sér að setja Bandaríkin í fyrsta sætið. Hann segir Trump hafa rangt fyrir sér. Ljóst sé að Rússar hafi haft afskipti af forsetakosningunum og þeir ætli sér að grafa undan lýðræði Bandaríkjanna.

„Ég hef í störfum mínum séð leyniþjónustu Rússlands spilað með fjölda fólks og átti alrdei von á því að forseti Bandaríkjanna yrði einn þeirra sem gamlar hendur KGB spiluðu með,“ sagði Hurd í Twitterþræði.

Chuck Schumer, leiðtogi minnihlutans í öldungadeild Bandaríkjaþings, segir ljóst að milljónir Bandaríkjamanna muni áfram velta því fyrir sér hve ástæða hegðunar Trump sé. Hvort mögulegt sé að Pútín og rússnesk yfirvöld hefðu í sínum fórum einhvers konar efni sem gæti litið illa út fyrir Trump.

„Í allri sögu Bandaríkjanna hafa Bandaríkjamenn aldrei séð forseta styðja við bakið á andstæðingi ríkisins á þann hátt sem Donald Trump styður Pútín,“ sagði Schumer á Twitter.

Hann bætti við að Trump væri að hugsa um sjálfan sig og ekki um hag Bandaríkjanna. Á undanförnum dögum og vikum hefði hann styrkt stöðu andstæðinga Bandaríkjanna og grafið undan sameiginlegum vörnum Bandaríkjanna og bandamanna þeirra.

Marco Rubio, þingmaður Repúblikanaflokksins og mótframbjóðandi Trump í forvali flokksins fyrir forsetakosningarnar, sagði að utanríkisstefna yrði að vera mótuð af raunveruleikanum. Ekki óskhyggju og rangfærslum.

„Staðreyndin er svo að Rússland er andstæðingur Bandaríkjanna. Því Pútín trúir ekki á stöðu þar sem allir vinna og hann heldur að eina leiðin til að styrkja Rússland sé að veikja Bandaríkin,“ sagði Rubio.

William J. Burns, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Rússlandi, sparaði ekki stóru orðin í viðtali. Hann sagði frammistöðuTrump hafa verið þá vandræðalegustu fyrir nokkurn forseta Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×