Innlent

Rauð pólitík – eldrauð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Það er gott fyrir fólk að hittast við jarðarfarir en ekki verra að fjölga tilefnunum,” segir Ögmundur.
„Það er gott fyrir fólk að hittast við jarðarfarir en ekki verra að fjölga tilefnunum,” segir Ögmundur. Fréttablaðið/Þórsteinn
„Ég ætla að vera úti við – að ég hélt undir tjaldhimni en virðist ætla að verða bláhimni,“ segir Ögmundur Jónasson glaðlega, spurður út í afmælishald dagsins í tilefni sjötíu áranna. 

Reyndar geri ég þetta á tvennan hátt,“ heldur hann áfram. „Ég stend fyrir málstofu í Norræna húsinu klukkan tvö sem nefnist Til róttækrar skoðunar og reyndar mun fara fram á ensku því þar verða margir útlendingar. Þar verður velt upp spurningu um hvort svo sé komið að við þurfum að byrja baráttuna upp á nýtt fyrir framtíð velferðarsamfélagsins, svo skitið, sundurtætt og illa leikið sem það er eftir nýfrjálshyggju síðustu áratuga.“  

Málstofan stendur frá tvö til fjögur, að sögn Ögmundar, og að henni lokinni verður haldið að heimili hans, Grímshaga 6. Þar ætlar hann að blanda geði við vini og samferðafólk og því gæti orðið margt um manninn í garðinum og á götunni sem hann ætlar að tjalda yfir.  Það kveðst hann líka hafa gert þegar hann varð fimmtugur og aftur þegar hann varð sextugur. „Það er ágætt að fólk hittist við jarðarfarir en ekki er verra að hafa fleiri tilefni til þess,“ bendir hann á. „Svo ætla ég reyndar að fara í hádeginu að hlusta á tvo listamenn í Hörpu, Judith Ingólfsson fiðluleikara og Vladimir Stoupel píanóleikara sem verða með örtónleika klukkan hálf eitt.“

 Ögmundur segir samkomuna í Norræna húsinu líka hefjast á tónlist, þar sem Stoupel er meðal flytjenda. „En aðallega verður rætt um pólitík og það rauða pólitík – eldrauða. Það er fjöldi fólks að koma til landsins til að stinga saman nefjum um velferðarmálin því þau brenna á mörgum. Fólk er farið að hafa áhyggjur af sjálfu lýðræðinu og öllu því sem barist var fyrir á öldinni sem leið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×