Lífið

Hinsegin kórinn og Andrea Gylfa flytja Loksins

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Í Hinsegin kórnum eru um sextíu söngvarar.
Í Hinsegin kórnum eru um sextíu söngvarar. NEIL SMITH
Lag Hinsegin daga árið 2018 ber heitið Loksins. Flytjendur eru Andrea Gylfadóttir og Hinsegin kórinn. Höfundur lagsins er jafnframt stjórnandi kórsins. Lagið verður frumflutt í dag.

„Hugsunin með laginu var að hafa það eilítið ólíkt þeim sem hafa verið undanfarin ár. Þau voru meiri dansmúsík en ég vildi semja lag sem væri þannig að fólk gæti farið heim, lagst í sófann, hlustað á það og velt fyrir sér hvaðan það kæmi, hvert það væri að fara og gerði það svolítið glatt,“ segir Helga Margrét Marzell­íusardóttir, höfundur lagsins.

Hinsegin kórinn var stofnaður síðsumars 2011 og fagnar því brátt sjö ára afmæli. Kórfélagar eru sem stendur rúmlega sjötíu og hefur kórinn verið virkur í starfi undanfarið.

Höfundurinn segir erfitt að negla lagið í eina ákveðna tónlistarstefnu en segir að Hammondorgel leiki stórt hlutverk í því.

„Hammond hefur alltaf verið eitt af mínum uppáhaldshljóðfærum. Andrea bætir síðan rosalega miklu við lagið. Stíll hennar er svo óbeislaður. Ef einhver íslensk söngkona getur tekið lag og sveipað það einhverju þá er það hún,“ segir Helga.

Sem fyrr er útgáfa lagsins liður í því að hita upp fyrir Hinsegin daga en í ár hefjast þeir 7. ágúst. Gleðigangan sjálf fer síðan fram laugardaginn 11. ágúst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×