Golf

Frumraun Haraldar á risamóti á erfiðasta vellinum

Þorsteinn Hallgrímsson skrifar
Haraldur æfir í Skotlandi
Haraldur æfir í Skotlandi vísir/friðrik
Carnoustie völlurinn í Skotlandi er einn af 10 völlum sem skiptast á að halda Opna breska meistaramótið í golfi. Mótið fer fram í 147. skipti í ár og er Carnoustie talinn einn erfiðasti völlurinn af mörgum kylfingum.

Hann er 6789 metra langur og er par vallarins 71. Það er ekki bara lengdin á vellinum í metrum sem gerir hann erfiðan heldur einnig hvar glompur eru staðsettar á brautunum og aðrar hindranir. Brautirnar eru mjóar, harðar og hraðar og því eiga kylfingar erfitt með að stöðva boltann á braut eftir upphafshögg. Karginn er á mörgum stöðum þéttur og hávaxinn og því erfitt að finna bolta, hvað þá að slá úr karganum.

Veðrið á vellinum er gott þessa dagana og allar aðstæður eru þær bestu fyrir bæði kylfingana og þá fjölmörgu áhorfendur sem fylgja þeim.

Haraldur Franklín Magnús er meðal þáttakenda, fyrstur íslenskra karlkyflinga til að leika á einu af risamótunum fjórum. Haraldur fór æfingahring í dag með Lee Westwood og Nicolas Colsaerts. Þeir léku brautir 10-18 í dag.

Haraldur hefur leik á morgun klukkan 09:53 og er mótið í beinni útsendingu á Golfstöðinni. Útsendingin hefst klukkan 5:30 í fyrramálið.


Tengdar fréttir

Woods: Carnoustie völlurinn sá erfiðasti

Um næstu helgi fer fram Opna breska meistaramótið í golfi. Mótið er leikið á Carnoustie vellinum í Skotlandi. Tiger Woods segir völlinn þann erfiðasta sem Opna breska meistaramótið er haldið á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×