Golf

Ólafía Þórunn: Þetta er svo gott fyrir hjartað

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, stóð í gær fyrir góðgerðamóti á Hvaleyrarvelli til styrktar Umhyggju, félags langveikra barna.

Þetta er annað árið í röð sem Ólafía stendur fyrir mótinu en í fyrra söfnuðust um fjórar milljónir króna fyrir Barnaspítala Hringsins.

„Ég elska að koma heim og sjá allt fólkið mitt. Ég fæ ekkert rosalega oft að spila á Íslandi svo það er skemmtilegt,“ sagði Ólafía Þórunn við Júlíönu Þóru Hálfdánardóttur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

„Þetta er svo gott fyrir hjartað og mér líður vel í marga daga eftir á,“ sagði Ólafía um mótið. Hún fékk fjóra atvinnukylfinga af LPGA mótaröðinni með sér til Íslands og tóku þær allar þátt í mótinu í gær.

Ólafía varð fyrsti íslenski kylfingurinn til þess að spila á risamóti á síðasta ári. Í dag varð Haraldur Franklín Magnús fyrstur karla til þess að leika á risamóti þegar hann hóf leik á Opna breska meistaramótinu rétt fyrir klukkan 10.

„Haddi, hann er snillingur. Hann á eftir að standa sig mjög vel. Hann er svo andlega sterkur og kann þetta alveg. Ég er mjög spennt að fylgjast með honum,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Alls söfnuðust þrjár milljónir á mótinu sem renna til Umhyggju – félags langveikra barna.

„Umhyggja styrkir fjárhagslega og styður með ýmsum hætti við fjölskyldur langveikra barna auk þess sem félagsmenn Umhyggju hafa til afnota tvö orlofshús sem eru sérútbúin sjúkrarúmum. Þá býður Umhyggja félagsmönnum upp á sálfræðiþjónustu, þeim að kostnaðarlausu. Það er aðeins með velvild og stuðningi einstaklinga og fyrirtækja í landinu sem hægt er að halda starfinu áfram og þökkum við KPMG og Ólafíu Þórunni kærlega fyrir að standa að þessu góðgerðarmóti“ segir Regína Lilja Magnúsdóttir, formaður Umhyggju.

Vísir er með beina textalýsingu af fyrsta hring Haralds og hana má lesa hér.

Ólafía Þórunn með stóra ávísun fyrir gott málefni.mynd/kpmg

Tengdar fréttir

Vaktin: Haraldur á fyrsta hring á Opna breska

Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, hóf í dag leik á Opna mótinu og varð þar með fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á einu af risamótunum fjórum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×