Innlent

Þingmaður Pírata birtir fyrirspurn til forseta Alþingis

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Jón Þór fer þess á leit við Steingrím að hann svari því hver það sé sem beri ábyrgð á þeim hluta alþjóðastarfs Alþingis að bjóða fulltrúum erlendra ríkja til Íslands fyrir hönd Alþingis.
Jón Þór fer þess á leit við Steingrím að hann svari því hver það sé sem beri ábyrgð á þeim hluta alþjóðastarfs Alþingis að bjóða fulltrúum erlendra ríkja til Íslands fyrir hönd Alþingis. Fréttablaðið/Ernireyjolfsson
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, krefur Steingrín J. Sigfússon, forseta Alþingis, svara vegna ræðu sem umdeildur stjórnmálamaður, Pia Kjærsgaard, var fengin til að halda á hátíðarþingfundi vegna hundrað ára afmælis fullveldis Íslands.

Fyrirspurnin er í fjórum liðum en spurningarnar snúa allar að því ferli ákvarðanatökunnar að fá Piu, forseta danska þjóðþingsins, til þess að ávarpa hátíðarsamkomuna.

Jón Þór fer þess á leit við Steingrím að hann svari því hver það sé sem beri ábyrgð á þeim hluta alþjóðastarfs Alþingis að bjóða fulltrúum erlendra ríkja til Íslands fyrir hönd Alþingis. Þá leikur Jóni Þóri hugur á að vita hvenær Piu var formlega boðið.

„Hver tók þá ákvörðun og hvenær, og hvernig var ákvarðanaferlinu háttað?“ spyr Jón Þór sem biður jafnframt um afrit af öllum samskiptum á milli Alþingis, forseta Alþingis og Skrifstofu Alþingis við danska þingið, ásamt öðrum upplýsingum sem geti varpað ljósi á ferlið.

Jón Þór vill þá fá að vita hvenær og með hvaða hætti fulltrúar í forsætisnefnd og formenn þingflokka Alþingis hefðu verið upplýstir um að til stæði að Pia héldi ræðu á hátíðarþingfundinum.

Að endingu spyr Jón Þór: „Með hve miklum fyrirvara er venjan að alþingi afturkalli boð fulltrúa erlendra ríkja til Íslands og hvaða ástæður hefðu nægt til að forseti Alþingis hefði afturkallað boð sitt til danska þingsins á hátíðarfundinn á Þingvöllum, og þá með hve miklum fyrirvara svo sómi væri af.“



Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sagði í fréttatilkynningu að hann harmaði það hvernig heimsókn Piu hefði verið notuð til þess að varpa skugga á hátíðarhöldin.Vísir/Valli
Fyrirspurnina er hægt að lesa hér að neðan í heild sinni: 

Fyrirspurn til forseta Alþingis um ávarp Pia Kjærsgaard á hátíðarþingfundi 18. júlí 2018. Frá Jóni Þór Ólafssyni.

1. Hver ber ábyrgð á þeim hluta alþjóðastarfs Alþingis að bjóða fulltrúum erlendra ríkja til Íslands fyrir hönd Alþingis?

2. Hvenær var forseta danska þingsins formlega boðið að vera með ávarp á hátíðarfundinum á Þingvöllum 18. júlí? Hver tók þá ákvörðun og hvenær, og hvernig var ákvarðanaferlinu háttað? Óskað er afrits af öllum samskiptum milli Alþingis, forseta Alþingis og skrifstofu Alþingis við danska þingið, ásamt öðrum upplýsingum sem varpað geta ljósi á þá ákvörðun, undirbúning hennar og framkvæmd.

3. Hvenær og með hvaða hætti voru fulltrúar í forsætisnefnd og formenn þingflokka Alþingis upplýstir um að annars vega stæði til að bjóða Pia Kjærsgaard sem forseta danska þingsins á hátíðarfundinn og hins vegar þegar henni hafði verið boðið? Leit forseti Alþingis svo á að birting tilkynningar á vef Alþingis 20. apríl síðastliðin fullnægði upplýsingaskyldu hans til forsætisnefndar og formanna þingflokka Alþingis? Ef ekki, hvernig þarf þeirri upplýsingagjöf að vera háttað til að vera fullnægjandi þegar fulltrúum erlendra ríkja er boðið í umboði Alþingis? Óskað er eftir afrit af dagskrár funda, dagskrárskjölum og þeim liðum fundargerða funda forsætisnefndar og funda forseta Alþingis með þingflokksformönnum sem varpað getur ljósi í málið.

4. Með hve miklum fyrirvara er venjan að Alþingi afturkalli boð fulltrúa erlendra ríkja til Íslands og hvaða ástæður hefðu nægt til að forseti Alþingis hefði afturkallað boð sitt til forseta danska þingsins á hátíðarfundinn á Þingvöllum, og þá með hve miklum fyrirvara svo sómi væri af?

Greinargerð.

Fyrirspurnin er sett fram til að varpa ljósi á það ákvarðanaferli sem leiddi til þess að Pia Kjærsgaard forseti danska þingsins var boðið að vera með ávarp á hátíðisfundi Alþingis á Þingvöllum 18. Júlí 2018 í tilefni af 100 fullveldi Íslands.



Spurning í 1. lið snýr að því hver í raun ræður því hverjir koma til Íslands í boði Alþingis.

Spurningin í 2. lið er til þess fallin að upplýsa að fullu um það ákvörðunarferli sem leiddi til þess að Pia Kjærsgaard forseti danska þingsins var boðið af forseta Alþingis að vera með ávarpa á hátíðarfundinum á Þingvöllum.

Spurningar í 3. lið varða tímanlega og fullnægjandi upplýsingagjöf til forsætisnefndar og þingflokka Alþingis um ákvarðanir forseta Alþingis að bjóða Pia Kjærsgaard sem fulltrúa erlends ríkisins á þingfund Alþingis.

Spurningar í 4. lið eru til þess fallnar að fá upplýst fyrir hvaða tíma þingflokkar á Alþingi hefðu þurft að vera formlega upplýstir um heimboð forseta danska þingsins til að koma á framfæri við forseta Alþingis mótmælum sem hefðu geta leitt til þess að hann afturkallaði heimboðið nógu tímanlega til að hægt væri að gera það með sóma.

Skriflegt svar óskast.


Tengdar fréttir

Táknrænar aðgerðir þingmanna á hátíðarfundi

Margir þingmenn úr hinum mismunandi stjórnmálaflokkum sýndu þá óánægju sína í ljós með því að bera sérstaka límmiða til höfuðs rasisma með áletruninni "Nej til racisme“ eða "Nei við kynþáttahyggju“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×