Körfubolti

Paul George verður áfram í Oklahoma

Paul Georga ákvað að halda kyrru fyrir
Paul Georga ákvað að halda kyrru fyrir víris/getty
Félagsskiptagluggi samningslausra leikmanna í NBA opnaði að miðnætti á bandarískum tíma og voru læti strax frá fyrstu mínútu.

Paul George kom öllum á óvart og endursamdi við Oklahoma City Thunder, en margir töldu hann vera á leið til gamla stórveldisins Los Angeles Lakers. Samningur George var til fjögurra ára og fær hann fjórtán og hálfan milljarð króna í laun fyrir árin fjögur.

Landsliðsmiðherji Bandaríkjanna og Íslandsvinurinn DeAndre Jordan samdi við Dallas Mavericks, en hann hefur leikið allan sinn feril hjá LA Clippers.

Chris Paul samdi aftur við Houston Rockets og fær tæplega 17 milljarða króna fyrir fjögurra ára þjónustu við félagið. Kevin Durant verður einnig áfram hjá sínu félagi, hann samdi við Golden State Warriors og heldur áfram hjá meisturum síðustu tveggja ára. Samningur Durant var til tveggja ára, með uppsegjanlegu ákvæði af hans hálfu eftir fyrra árið.

Derrick Rose, sem kannski mætti kalla fyrrum stórstjörnu, samdi aftur við Minnesota Timberwolves. Rose, sem var valinn besti leikmaður NBA árið 2011, lék aðeins 25 leiki í fyrra. Hjá Timberwolves leikur hann fyrir Tom Thibodeau sem var þjálfari Chicago Bulls þegar Rose var upp á sitt besta. Við að skrifa undir samninginn virkjar Rose ákvæði í risastórum skósamning sínum við Adidas. Við það eitt að vera skráður í lið í NBA-deildinni fær hann 1,5 milljarða króna í sinn hlut

Trevor Ariza, sem var mikilvægur hlekkur í Houston Rockets, er farinn til Phoenix Suns. Rockets var það lið sem var næst því að slá Golden State Warriors úr leik og var Ariza mikilvægur Rockets í vörn. Því hefur samkeppni meistaranna í Warriors veikst. Ariza fer til Suns, sem er með ungt og spennandi lið. Hann samdi til aðeins eins árs en fær 1,6 milljarða króna fyrir.

Hægt er að lesa um öll frágengin félagsskipti á síðu ESPN.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×