Innlent

Ekkert um réttarstöðu barnsins í úrskurði kærunefndar útlendingamála

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Kærunefnd útlendingamála hafnaði í dag beiðni albanskra hjóna sem vísa á úr landi um frestun réttaráhrifa. Hvergi er minnst á réttarstöðu fjórtán mánaða dóttur þeirra í úrskurðinum en aðalmeðferð í dómsmáli er snýr að stöðu dótturinnar fer fram í héraði í nóvember. 

Erna Reka er fjórtán mánaða og fædd á Íslandi en foreldrar hennar Nazife og Erion eru frá Albaníu og hafa búið hér á landi í tæp tvö ár. Í maí staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja Nazife og Erion um dvalarleyfi og ákvörðun um tveggja ára endurkomubann. Í dag hafnaði kærunefndin svo beiðni foreldra Ernu um frestun réttaráhrifa um brottvísun þeirra úr landi.

„Það er engin umfjöllun í úrskurðinum um barnið. Það snýst bara um foreldra hennar og það í sjálfu sér er náttúrlega bara að mínu áliti gallaður úrskurður. Þú getur ekki tekið ákvörðun um foreldra en ekkert um barn,“ segir Claudie Ashonie Wilson, lögmaður fjölskyldunnar.

Farið verður fram á endurupptöku að sögn Claudie sem segir ennfremur að brotið sé gegn Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, enda sé Ernu mismunað á grundvelli stöðu foreldra sinna. Dómsmál hefur verið höfðað hvað þetta atriði varðar og fer aðalmeðferð í því fram í nóvember. Að óbreyttu verður fjölskyldan þá farin úr landi sem skapað getur þær aðstæður að Erna teljist ekki lengur hafa lögvarða hagsmuni af málarekstrinum.

„Það er ákvæði í útlendingalögum sem segir að ef barn er fætt hér á Íslandi þá má ekki brottvísa því úr landi, það er verndað fyrir slíkum brottvísunum,“ segir Claudie. „En það er gert það skilyrði að viðkomandi barn sé skráð í þjóðskrá en með því að skrá það á utangarðsskrá þá er það náttúrlega augljóslega ekki skráð í þjóðskrá,“ bætir hún við.

Vísar hún þá til til þess að til þessa hafi Þjóðskrá skráð búsetu barna eins og Ernu með öðrum hætti en barna sem fædd eru hjá íslenskum foreldrum eða fólki með varanlegt dvalarleyfi þannig að þau teljist ekki eiga hér „óslitna búsetu samkvæmt þjóðskrá“ líkt og vísað er til í lögunum. 


Tengdar fréttir

Fjórtán mánaða vísað úr landi

Kærunefnd útlendingamála kvað upp úrskurð í dag í máli fjölskyldunnar á þá leið að henni verði ekki veitt áframhaldandi landvistarleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×