Körfubolti

Lakers bæta Rondo við leikmannalistann

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rondo er mættur til LA
Rondo er mættur til LA víris/getty
Los Angeles Lakers styrkja sig enn frekar fyrir komandi tímabil í NBA deildinni með komu Rajon Rondo. Julius Randle yfirgefur liðið en fyrr í morgun var LeBron James tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins.

Lakers hafði betur gegn New Orleans Pelicans í baráttunni um Rondo en félagið borgar honum 9 milljónir dollara fyrir eins árs samning.

Rondo skoraði 8,3 stig að meðaltali í leik í deildarkeppninni með Pelicans á síðasta tímabili.











NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×