Lífið

Þor­valdur Davíð vill verða bæjar­stjóri á Seyðis­firði

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Menntamál ættu að vera í góðum höndum, verði skólarapparinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson fyrir valinu.
Menntamál ættu að vera í góðum höndum, verði skólarapparinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson fyrir valinu. Vísir
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er meðal þeirra 12 sem sækjast eftir því að verða bæjarstjóri á Seyðisfirði.

Þorvaldur Davíð er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur meðal annars gert garðinn frægan í kvikmyndum á borð við Ég man þig, Svartur á leik og Vonarstræti. Þá ljáði hann ljónsunganum Simba rödd sína í Konungi ljónanna ásamt því að syngja inn á Skólarapp ásamt Söru Dís Hjaltested. Þá mun menntun hans úr listaskólanum Juilliard eflaust koma að góðum notum við rekstur bæjarins.

Fram kemur á vef bæjarfélagsins að leitað verði til ráðningarskrifstofu sem muni sjá um áframhaldandi vinnslu umsóknargagna sem og mat á hæfi Þorvaldar og annarra umsækjenda.

Þeirra á meðal eru Gísli Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri á ísafirði, og Kristín Amalía Atladóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs.

Ljóst er að leikarinn og Kristín væru á heimavelli, yrðu annað hvort þeirra fyrir valinu, enda er Seyðisfjörður þekktur fyrir blómlegt listalíf. Þarf ekki að leita lengra en til listahátíðarinnar LungA, sem árlega trekkir að hundruð íslenskra listamanna til bæjarins. Hátíðin fer fram um miðjan júlímánuð og setur ætíð mikinn svip á 700 manna bæjarfélagið.

Fyrst minnst er á LungA: meðal umsækjenda er jafnframt Aðalheiður Borgþórsdóttir, sem af staðkunnungum er þekkt sem „Mamma LungA“ enda stofnandi hátíðarinnar og framkvæmdastjóri hennar til 17 ára. Þar að auki var hún menningarfulltrúi Seyðisfjarðar í nærri tvo áratugi, meðstofnandi myndlistarmiðstöðvarinnar Skaftfells og svo lengi mætti telja.

Listann yfir umsækjendur má sjá hér að neðan.

Aðalheiður Borgþórsdóttir, Seyðisfirði

Arnbjörg Sveinsdóttir, Seyðisfirði

Gísli Halldór Halldórsson, Ísafirði

Guðrún Lilja Magnúsdóttir, Egilsstöðum

Jóhann Freyr Aðalsteinsson, Osló

Jón Kristinn Jónsson, Hafnarfirði

Kristín Amalía Atladóttir, Egilsstöðum

Ólafur Hr. Sigurðsson, Seyðisfirði

Snorri Emilsson, Seyðisfirði

Sveinn Enok Jóhannsson, Reykjanesbæ

Tryggvi Harðarson, Reykjavík

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×