Erlent

Ákærður fyrir nauðgun og morð á hinni sex ára gömlu Aleshu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Leit að Aleshu MacPhail stóð yfir í tvo og hálfan tíma áður en hún fannst látin í hótelrústum.
Leit að Aleshu MacPhail stóð yfir í tvo og hálfan tíma áður en hún fannst látin í hótelrústum. Facebook/Angela King
Sextán ára gamall táningur hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað og myrt hina sex ára gömlu Aleshu MacPhail. Stúlkan fannst látin í rústum gistiheimilis á skosku eyjunni Bute fyrr í vikunni. BBC greinir frá.

Fyrstu fregnir af hvarfi stúlkunnar bárust á mánudagmorgun þegar amma hennar birti færslu á Facebook þar sem hún lýsti eftir henni. Hefur málið vakið mikinn óhug á Bretlandseyjum.

Táningurinn sem grunaður er um að hafa myrt og nauðgað stúlkunni var handtekinn á miðvikudag og færður fyrir dómara í dag. Hann tók enga afstöðu til ákærunnar fyrir dómi í dag.

Stúlkan bjó ásamt móður sinni í skoska bænum Airdrie og stundaði nám í Chapelside-barnaskólanum. Hún var í sumarfríi ásamt föður sínum á eynni Bute sem er að finna við vesturströnd Skotlands.


Tengdar fréttir

Lát Aleshu rannsakað sem morð

Lögregla á skosku eyjunni Bute hefur staðfest að andlát hinnar sex ára Aleshu MacPhail sé nú rannsakað sem morð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×