Sport

Getur Daniel Cormier skráð sig á spjöld sögunnar?

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Daniel Cormier þegar hann varði titilinn sinn síðast.
Daniel Cormier þegar hann varði titilinn sinn síðast. Vísir/Getty
Stærsta bardagakvöld ársins fer fram í kvöld í Las Vegas þar sem tveir ríkjandi meistarar mætast í sannkölluðum ofurbardaga. Daniel Cormier getur skráð sig á spjöld sögunnar með sigri en á erfitt verkefni í vændum.

UFC er alltaf með stórt bardagakvöld í kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, 4. júlí. Bardagakvöldin á þessum tíma eru iðulega með þeim stærstu á árinu en á undanförnum þremur árum hafa bardagasamtökin alltaf orðið fyrir óhöppum skömmu fyrir bardagakvöldið. Á því var engin undantekning í ár en seint á miðvikudaginn kom í ljós að Max Holloway væri ófær um að keppa en hann átti að verja fjaðurvigtartitil sinn gegn Brian Ortega.

Aðalbardagi kvöldsins er ennþá á sínum stað en þar mætast þeir Daniel Cormier og Stipe Miocic um þungavigtartitilinn. Cormier er ríkjandi léttþungavigtarmeistari en fer nú upp í þungavigt til að skora á Miocic.

Það hefur alltaf verið eitthvað sérstaklega áhugavert við þungavigtina í bardagaíþróttum. Fyrsti þyngdarflokkurinn sem settur var á laggirnar í UFC var einmitt þungavigtin og hefur þyngdarflokkurinn alltaf þótt áhugaverður frá því Mark Coleman varð fyrsti þungavigtarmeistari UFC árið 1997. Fáum hefur þó tekist að halda titlinum lengi en fyrr á árinu varð Stipe Miocic sá fyrsti til að verja þungavigtartitilinn oftar en tvisvar. Þrjár titilvarnir hans fölna þó í samanburði við 11 titilvarnir Demetrious Johnson í fluguvigt.

Léttþungavigtarmeistarinn Daniel Cormier fer nú aftur upp í þungavigt en fyrstu 13 bardagar hans á MMA ferlinum voru í þungavigt. Þar var hann ósigraður og varð meðal annars þungavigtarmeistari Strikeforce bardagasamtakanna. Cormier hefur sigrað sterka keppendur í þungavigt á borð við Frank Mir, Roy Nelson, Josh Barnett og Antonio ‘Big Foot’ Silva.

Það væri magnað afrek ef Cormier tækist að vinna Miocic í kvöld. Þar með yrði hann annar maðurinn í sögu UFC til að vera meistari í tveimur þyngdarflokkum á sama tíma en aðeins Conor McGregor hefur náð að leika það eftir.

Einu töp Cormier í búrinu voru gegn Jon Jones í léttþungavigtinni. Jones hefur lengi talað um að fara upp í þungavigt og skora á stóru strákana þar. Vandamál hans utan búrsins hafa þó haldið honum á hliðarlínunni og væri það eflaust sárt fyrir vandræðagemlinginn að sjá erkióvin sinn Daniel Cormier ná markmiðinum sem Jones hefur svo lengi talað um.

Með sigri kemst Daniel Cormier ofarlega á lista yfir þá bestu í sögu MMA. Til þess þarf hann þó að sigra Stipe Miocic sem er að margra mati besti þungavigtarmaður í sögu UFC.

UFC 226 fer fram í nótt og verður sýnt á Stöð 2 Sport en bein útsending hefst kl. 2.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×