Lífið

Justin Bieber trúlofaður

Andri Eysteinsson skrifar
Turtildúfurnar hafa nýlega tekið saman aftur.
Turtildúfurnar hafa nýlega tekið saman aftur. Vísir/Getty
Kanadíski poppprinsinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Baldwin hafa undanfarna daga dvalið á Bahamaeyjum og þar gerði Bieber sér lítið fyrir og skellti sér á skeljarnar. CNN greinir frá gleðitíðindunum.

E! greinir frá því að hjartaknúsarinn hafi beðið Baldwin um að giftast sér fyrir framan fjölda fólks í Baker‘s flóa á eyjunni Great Guana Cay.

Parið hefur ekki enn tjáð sig um málið en aðilar nákomnir þeim segja að bónorðið hafi komið flatt upp á Baldwin sem sagði umsvifalaust já.

Baldwin og Bieber hafa nýlega tekið saman aftur en þau höfðu áður verið í sambandi árið 2016.

Foreldrar Bieber birtu skilaboð á samfélagsmiðlum og eru stolt af drengnum sínum.

Faðir Hailey Baldwin, leikarinn góðkunni Stephen Baldwin, birti á Twitter síðu sinni vers úr biblíunni og sagðist blessaður af guði. Baldwin óskaði einnig foreldrum Bieber til hamingju í tísti sem hann fjarlægði nokkrum mínútum seinna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×