Innlent

„Beitti öllum brögðum“ gegn föður langveiks drengs

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Drengurinn sem um ræðir fæddist í október 2005.
Drengurinn sem um ræðir fæddist í október 2005. Fréttablaðið/Stefán
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi synjun Tryggingastofnunar ríkisins (TR) á umsókn föður langveiks barns um tekjutengdar greiðslur til foreldra á vinnumarkaði. Dómurinn taldi synjunina andstæða stjórnarskrá.

Árið 2006 tóku gildi ný lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Þau taka aðeins til barna sem fæddust 1. október 2007 eða síðar.

Drengurinn sem um ræðir fæddist í október 2005. Föður hans var synjað um greiðslurnar í tvígang vegna þessa auk þess sem Hæstiréttur vísaði máli hans frá árið 2016. Því var málið fært í nýjan búning, úr kröfu um greiðslu í ógildingarmál.

Dómurinn taldi að það stæðist ekki málefnalega skoðun að gera greinarmun á rétti til félagslegrar aðstoðar til fjölskyldna barna sem eru fötluð eða alvarlega veik eftir því hvenær fötlun þeirra eða sjúkdómur er greindur. Synjunin var því felld úr gildi. Þá gerir dómurinn athugasemdir við framgöngu ríkisins.

„Við gæslu hagsmuna ríkisvaldsins eða einstakra þátta þess í skiptum við almenna borgara getur það ekki verið hlutverk stjórnvalda að leita allra leiða eða beita öllum brögðum til að fá sýknu fyrir hið opinbera eða til að fá málum vísað frá dómi. Þeim sem falið er að koma fram fyrir hönd ríkisvaldsins í dómsmáli er ekki tækt að verjast með öllum sömu ráðum og einkaaðilum. Þeim sem fara með opinbert vald eða sem falið er að gæta hagsmuna hins opinbera er trúað fyrir hlutverki sem þeir verða að sinna í almannaþágu og af virðingu fyrir skyldu sinni til að stuðla að réttmætri niðurstöðu,“ segir í niðurstöðukafla dómsins.

„Við eigum eftir að sjá hvort TR unir dómnum. Krafan gæti verið fyrnd en þá gæti hafa myndast réttur til skaðabóta,“ segir Júlí Ósk Antons­dóttir, lögmaður föðurins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×