Lífið

Chrissy Teigen svarar fyrir sig

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ýmsir netverjar hafa haft sig í frammi og sent hinni nýbökuðu móður orsendingu þess efnis að ljósmyndin sé ekki við hæfi og að hún ætti að hylja sig.
Ýmsir netverjar hafa haft sig í frammi og sent hinni nýbökuðu móður orsendingu þess efnis að ljósmyndin sé ekki við hæfi og að hún ætti að hylja sig. Chrissy Teigen Instagram
Ljósmynd af leikkonunni og fyrirsætunni Chrissy Teigen að gefa barninu sínu og brúðu dóttur sinnar brjóst hefur ekki aðeins vakið jákvæða athygli heldur líka neikvæða. Teigen setti ljósmyndina inn á Instagram og Twitter með skrifaði „Luna lætur mig líka gefa dúkkunni sinni brjóst. Ég held að ég eigi tvíbura núna.“

Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa í netheimum og á aðeins einum degi hafa tæplega þrjár milljónir „líkað við“ myndina og 18.000 manns gert slíkt hið sama á Twitter.

Ýmsir netverjar hafa haft sig í frammi og sent hinni nýbökuðu móður orsendingu þess efnis að ljósmyndin sé ekki við hæfi og að hún ætti að hylja sig.

Chrissy Teigen og John Legend eignuðust Miles í maí á þessu ári. Fyrir eiga þau dótturina Lunu.
Þessi ummæli og önnur sem voru á svipuðum nótum hefur greinilega komið illa við Teigen því hún ákvað að svara gagnrýninni fyrir sína hönd og annarra mæðra í sömu sporum. Hún segir að það sé annarra manna vandamál að ljósmyndin hafi orðið að einhverju stórmáli, fólk verði bara að eiga það við sig. Það ætti ekki að vera neitt stórmál að gefa barninu sínu að borða.

Notandi á Twitter svaraði um hæl og sagði að þrátt fyrir að allt væri eðlilegt við barnsfæðingar, blæðingar og brjóstagjöf þýði það þó ekki að hún vilji sjá ljósmyndir af því.

Teigen sagði þá: „Mig langar hvorki til þess að sjá kornóttar ljósmyndir af flugeldum né sjálfumyndir af Coahella. Þá hef ég engan áhuga á því að sjá ljósmyndir af sundlaugum en ég leyfi fólki samt að lifa.“

Margir netverjar hafa sýnt stuðning sinn við Teigen í verki með því að hrósa henni fyrir ljósmyndina og nota myllumerkið #normalizebreastfeeding.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×