Golf

"Þessi völlur er aðeins fyrir karlmenn“

Dagur Lárusson skrifar
Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn. Mynd/LPGA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, lenti í heldur leiðinlegu atviki í dag ef marka má síðustu Twitter færslu hennar.

Ólafía, sem var valinn íþróttamaður ársins 2017, hefur verið að spila á LPGA mótaröðinni síðastliðið ár en hún ætlaði sér að taka æfingu í dag en fékk leiðinlegt svar til baka.

Í Twitter færslunni segir Ólafía að hún hafi hringt til þess að athuga hvort hún mætti æfa á ákveðnum golfvelli. Hún hafi hins vegar fengið svar strax til baka að golfvöllurinn sé aðeins aðgengilegur fyrir karlmenn.

Ekki er vitað hvaða golfvöllur þetta er, en má gera ráð fyrir þvi að þetta sé golfvöllur í Bandaríkjunum þar sem Ólafía er staðsett þar þessa daganna.

Ólafía, ásamt fleirum, undrar sig að sjálfsögðu á þessu svari en Twitter-færsluna má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×