Erlent

Viðurkenna tölvuleikjafíkn sem geðsjúkdóm

Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar
Ýmsir tölvuleikir geta verið mjög ávanabindandi.
Ýmsir tölvuleikir geta verið mjög ávanabindandi.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur viðurkennt tölvuleikjafíkn sem geðsjúkdóm. Tölvuleikjafíkn eða svokölluð tölvuleikjaröskun þykir að mati stofnunarinnar þó enn sjaldgæft fyrirbæri.

„Við finnum fyrir því að foreldrar hafa áhyggjur af tölvuleikjanotkun barna sinna. Við sjáum líka að fólk er að átta sig á vandamálinu. Það er gott að grípa inn í áður en krakkarnir byrja að nota tölvuna,“ segir Guðrún Katrín Jóhannesdóttir, félagsfræðingur og ráðgjafi hjá Mikils virði, áfalla- og fjölskyldumiðstöð.



Guðrún Katrín Jóhannsdóttir félagsfræðingur.
„Við fögnum niðurstöðunum því nú er komin skýr skilgreining á tölvuleikjafíkn. Það hefur sýnt sig að þetta er fíkn rétt eins og vímuefnafíkn,“ segir Guðrún Katrín.

Leikir eru misávanabindandi og ekki eru allir sem lenda í því að þróa með sér tölvuleikjafíkn.

Að mati margra eru ákveðnir leikir hins vegar sniðnir til að vera ávanabindandi. Slíkir leikir eru að mestu fjölþátttökuleikir, leikir eins og Fort­nite, þar sem leikendur spila hver við annan víðsvegar um heiminn í gegnum tölvuna.

Afleiðingar af ávanabindandi tölvuleikjanotkun eru víðtækar; sálrænar, félagslegar, líkamlegar og annað. Þunglyndi og kvíði eru algengir kvillar. „Það er ekkert grín að börnin okkar séu að leika sér í þessu. Þetta byrjar oft svo sakleysislega en svo hægt og bítandi fara þau að hafa minni áhuga á öllu í kringum sig og veita því enga athygli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×