Fótbolti

Umboðsmaður Bale: „Snýst um spiltíma en ekki peninga“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bale eftir úrslitaleikinn gegn Liverpool þar sem hann var hetjan.
Bale eftir úrslitaleikinn gegn Liverpool þar sem hann var hetjan. vísir/getty
Umboðsmaður Gareth Bale segir að Real Madrid þurfti að tryggja honum spiltíma vilji þeir halda honum hjá félaginu.

Framtíð Bale hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga og vikur eða eftir að hann skoraði tvö mörk í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Liverpool.

Í viðtali eftir leikinn sagðist hann ekki hafa fengið að spila nóg á nýafstöðnu tímabili og sagður vilja skoða aðra kosti. Man. Utd hefur verið nefnt í þessu samhengi.

„Ég held að við þurfum að tala við Real Madrid og sjá hvað er í stöðunni. Hann vill verða betri á síðasta tímabili og vill spila meira. Það er númer eitt hjá honum,” sagði Jonathan Barnett, umboðsmaður Bale.

„Fyrir leikmann eins og Bale snýst þetta um að spila en ekki um peninga. Hann vill vinna Ballon D’or og hann veit að hann getur það. Ég held að hann sé besti Bretinn sem við höfum séð spila fyrir utan Bretland.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×