Innlent

Byltingarkennd nýsköpun í iðkun íþrótta á landinu

Benedikt Bóas skrifar
Bjarni Ólafur Eiríksson, leikmaður Vals, hugsar gríðarlega vel um líkamann á sé
Bjarni Ólafur Eiríksson, leikmaður Vals, hugsar gríðarlega vel um líkamann á sé Vísri/arnþór
„Það er alltaf þörf fyrir nýsköpun á sviði íþrótta,“ segir prófessor Arnold Baca frá Íþróttaháskólanum í Vínarborg en Ísland er meðal fimm landa sem hafa sameinast um að vinna að bættri aðstöðu og iðkun margs konar íþrótta meðal ungmenna í þessum löndum.

Samstarf þetta er stutt af Framkvæmdastjórn ESB undir Erasmus+ Sport áætluninni. Lögð er sérstök áhersla á að íþróttir leiði til heilsueflingar og er lagt mikið upp úr íþróttaiðkun háskólastúdenta. Ísland hefur fengið um 10 milljónir króna til að standa straum af kostnaði við þátttöku í verkefninu en í heild kostar verkefnið um hálfan milljarð króna.

Aðrir þátttakendur í verkefninu er Íþróttaháskólinn í Sofia, Íþróttaháskólinn í Vínarborg, Háskólinn í VesturUngverjalandi, Samtök ungmenna í vísindum og viðskiptum í Tallinn og Goce Delcev háskólinn í Stip. Íslenskir þátttakendur eru Krefjandi; félag um rannsókna- og nýsköpunarstarfsemi ásamt íþróttavísindasviði Háskólans í Reykjavík.

Markmið samstarfsins er að bæta núverandi kerfi íþróttaþjálfunar í háskólum í þátttökulöndunum. Þess vegna hefur verið lögð áhersla á að bæta tæknilegan þátt þjálfunar. Því hefur verið hannað smáforrit, sem iðkendur geta notað í síma við íþróttaþjálfun.

Þetta smáforrit er þungamiðjan í samstarfinu. Að baki þessari hönnun er prófessor Arnold Baca frá Íþróttaháskólanum í Vínarborg. Leitað hefur verið til íslenskra háskólanema til að prófa forritið og þjálfunaráætlunina nú í haust. Þeir verða beðnir um að stunda ákveðna þjálfun sem byggir á smáforritum í snjallsímum og bera á sér lítil tæki sem nema hreyfingu og líkamsástand.

Þá fá háskólanemar í samstarfslöndunum fimm tækifæri til að þróa nýjar aðferðir við þjálfun. Gert er ráð fyrir að forritið verði aðgengilegt eftir áramót en prófanir, sem lofa góðu, munu standa út árið. Nemum frá íþróttasviði Háskólans í Reykjavík er boðið að taka þátt í þróun smáforritsins og munu þeir æfa eftir því




Fleiri fréttir

Sjá meira


×