Fótbolti

Allt annað en venjulegur dagur á skrifstofunni

Tómas Þór Þórðarson í Volgograd skrifar
Alfreð Finnbogason og Hannes Þór Halldórsson munu ekki gleyma 16. júní 2018 í bráð.
Alfreð Finnbogason og Hannes Þór Halldórsson munu ekki gleyma 16. júní 2018 í bráð. vísri/vilhelm
Hannes Þór Halldórsson og Alfreð Finnbogason, leikmenn íslenska landsliðsins í fótbolta, segja upplifunina af Argentínuleiknum í Moskvu eðlilega vera eitthvað sem að þeir munu aldrei gleyma.

Þeir félagarnir sátu fyrir svörum á blaðmannafundi á æfingasvæðinu í Kabardinka í gær og viðurkenndu að leikurinn við Messi og félaga var allt annað en venjulegur dagur á skrifstofunni.

„Þetta var nú allt annað en venjulegur dagur í vinnunni. Þetta var auðvitað ótrúleg upplifun enda fyrsti leikur Íslands á heimsmeistaramóti. Það er eitthvað sem allir í hópnum eru stoltir af því að hafa tekið þátt í,“ sagði Hannes Þór Halldórsson.

Hannes Þór varði víti frá Lionel Messi.vísir/vilhelm

Einbeitingin á næsta leik

Hannes varði víti frá Messi og Alfreð skoraði fyrsta mark Íslands á HM frá upphafi. Stórar stundir sem þeir munu gleyma seint.

„Þetta voru stór augnablik og eitthvað sem við munum aldrei gleyma en ég held að núna snúist þetta um að leggja þetta aðeins til hliðar. Við munum heyra nóg af þessu síðar þegar að við verðum komnir heim. Nú þurfum við að einbeita okkur að næsta leik,“ sagði Hannes.

Alfreð tók undir með markverðinum. Þetta var ógleymanlegt. „Þetta er stærsta sviðið sem hægt er að vera á í fótboltanum og er eitthvað sem mun fylgja okkur leikmönnum lengra eftir mótið,“ sagði hann.

„Það var ekkert eðlilegt við þennan fyrsta leik. Þetta var fyrsti leikur Íslands á HM og erfiðara að ná ró fyrir þennan leik heldur en marga aðra.“

Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands á HM.VÍSIR/VILHELM

Fljótir í núllstillingu

Strákarnir okkar lentu í Volgograd í gær og mæta Nígeríu hér í borg á morgun og þar þurfa þeir sigur ef þeir ætla sér stóra hluti í þessu móti. Stigið gegn Argentínu getur gleymst fljótt ef illa fer.

„Eins og fótboltinn er vitum við að við þurfum að vera fljótir að núllstilla okkur. Stigið sem við fengum á móti Argentínu var frábært en við vitum að ekki förum við áfram með eitt stig,“ segir Alfreð.

„Í fótboltanum ertu dæmdur af þínum síðasta leik. Við þurfum því að vera fljótir að ná okkur niður og gera okkur klára fyrir næsta leik því hvort sem að fer illa eða vel verður bragðið af síðasta leik alltaf í munninum,“ segir Alfreð Finnbogason

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×