Enski boltinn

Frank Lampard mætir Jóni Daða og félögum í fyrsta leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. Vísir/Getty
Knattspyrnustjóraferill Frank Lampard með Derby County byrjar á móti Reading á útivelli en í morgun kom í ljós leikjadagskrá ensku b-deildarinnar 2018-19.

Jón Daði Böðvarsson og félagar í Reading taka á móti Derby County föstudaginn 3. ágúst sem verður jafnframt fyrsti leikurinn á tímabilinu í enska boltanum.

Frank Lampard var ráðinn knattspyrnustjóri Derby County á dögunum en Lampard er fertugur og spilaði sinn síðasta leik í Englandi tímabilið 2014-15.







Fyrsta tímabil Stoke City í b-deildinni í mörg ár byrjar á móti Leeds United á      Elland Road en West Bromwich Albion og Swansea City féllu einnig úr deildinni.

West Brom fær Bolton Wanderers í heimsókn en Swansea City heimsækir Sheffield United í fyrstu umferðinni.



Fyrsta umferð ensku b-deildarinnar 2018-19:

Föstudagur 3. ágúst 2018

Reading - Derby County

Laugardagur 4. ágúst 2018

Birmingham City - Norwich City

Brentford - Rotherham United

Bristol City - Nottingham Forest

Ipswich Town - Blackburn Rovers

Millwall - Middlesbrough

Preston North End - Queens Park Rangers

Sheffield United - Swansea City

West Bromwich Albion - Bolton Wanderers

Wigan Athletic - Sheffield Wednesday

Sunnudagur 5. ágúst

Leeds United - Stoke City

Mánudagur 6. ágúst

Hull City - Aston Villa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×