Innlent

Bein útsending: Samgönguþing 2018

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þingið er lokaskref í samráðsferli við gerð stefnumótandi samgönguáætlunar 2019-2033.
Þingið er lokaskref í samráðsferli við gerð stefnumótandi samgönguáætlunar 2019-2033. Fréttablaðið/Ernir
Samgönguþing 2018 verður haldið á Hótel Sögu í Reykjavík (Súlnasal) í dag klukkan 13-16.30.

Á þinginu, sem er lokaskref í samráðsferli við gerð stefnumótandi samgönguáætlunar 2019-2033, verður fjallað um helstu áherslur í áætluninni, framkvæmdir og fjármögnun, almenningssamgöngur, umferðaröryggi og hlutverk upplýsingatækninnar í framtíðarsamgöngum. Frummælendur fjalla um hvert málefni og í kjölfarið verða umræður með þátttöku sérfræðinga á viðkomandi sviði, ásamt fyrirspurnum úr sal.

Hægt er að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu hér fyrir neðan.

Dagskrá Samgönguþings 2018

13:00 Setning

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra

Samgönguáætlun 2019-2033 - staða og helstu áherslur

Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs

13:20 Framkvæmdir

Áskoranir, framkvæmdir og fjármögnun

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 

Skattstofnar ökutækja og eldsneytis – framtíðaráskoranir 

Benedikt S. Benediktsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti

Umræður: Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB

14:20 Kaffihlé

14:40 Þjónusta

Almenningssamgöngur - ávinningur af heildstæðri stefnu

Árni Freyr Stefánsson, verkfræðingur hjá Mannviti 

Umræður: Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar, Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, og Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar

15:20 Öryggi

Umferðaröryggi og samfélagslegur kostnaður

Berglind Hallgrímsdóttir, umferðarverkfræðingur hjá Eflu 

Ástandið í umferðinni og ávinningur af sýnilegu eftirliti

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi

Umræður: Sigríður Vala Halldórsdóttir, forstöðumaður hagdeildar hjá Sjóvá, og Haraldur Sigþórsson, verkfræðingur

16:00 Tækni

Upplýsingatækni, iðnbylting og samgöngur: Hvaða möguleikar skapast í samgöngum með nýrri tækni 4. iðnbyltingarinnar

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík

Umræður: Lilja G. Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Viaplan, og Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar

16:30 Léttara hjal með Sóla Hólm, þinglok og léttar veitingar

Þingstjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×