Golf

Spieth á meðal efstu manna eftir frábæra byrjun

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jordan Spieth
Jordan Spieth visir/getty
Jordan Spieth byrjaði afar vel á Travelers Championship mótinu sem fram fer í Connecticut í Bandaríkjunum um helgina. Mótið er hluti af PGA mótaröðinni.

Spieth var kominn fjögur högg undir pari eftir aðeins fimm holur en endaði hringinn á sjö höggum undir pari líkt og landi hans, Zach Johnson, og leiða þeir því eftir fyrsta hring.

Rory Mcllroy, Brian Harman og Peter Malnati eru skammt undan, jafnir í þriðja sæti á sex höggum undir pari.

Sýnt er frá mótinu á Golfstöðinni og hefst útsending frá öðrum degi klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×