Kroos hetja Þjóðverja í sigri á Svíum

Einar Sigurvinsson skrifar
Toni Kross skoraði sigurmark leiksins á 95. mínútu.
Toni Kross skoraði sigurmark leiksins á 95. mínútu. getty
Sigurmark Toni Kroos á 95. mínútu tryggði Þýskalandi 2-1 sigur á Svíþjóð í lokaleik 2. umferðar F-riðils á HM í knattspyrnu.

Þýskaland byrjaði leikinn af miklum krafti og strax á 3. mínútu leiksins fengu þeir gott færi. Julian Draxler fékk þá boltann inni á markteig Svía en skot hans fór af varnarmanni og aftur fyrir.

Þýskaland réði lögum og lofum á vellinum framan af en eitt hættulegasta færi fyrri hálfleiks féll þó í skaut Svía. Marcus Berg slapp þar einn í gegn á móti Manuel Neuer en skot hans fór beint í fyrirliðann í markinu. Svíar vildu meina Jerome Boateng hefði brotið á Berg í sókninni og höfðu sennilega eitthvað til síns máls, en dómari leiksins dæmdi ekki vítaspyrnu og kaus að skoða atvikið ekki nánar með aðstoð VAR.

Svíar tóku forystuna á 32. mínútu. Toni Kroos gerði þar sjaldséð mistök þegar hann gaf boltann beint á Marcus Berg sem kom boltanum á Viktor Claesson. Claesson kom boltanum fyrir markið á Ola Toivonen sem kláraði færið vel með því að vippa yfir Manuel Neuer í marki Þýskaland.

Þýskaland byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og á 46. mínútu tókst Marco Reus að jafna leikinn. Hann skoraði eftir sendingu fyrir markið frá Mario Gomez sem kom inn á í hálfleik.

Þrátt fyrir stórsókn Þjóðverja náðu heimsmeistararnir ekki að finna leiðina í netið og leyndi pirringur leikmanna sér ekki. Á 82. mínútu var Jérôme Boateng vikið af velli eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald eftir tæklingu á Marcus Berg.

Einum færri Þjóðverjar héldu áfram að sækja stíft á mark Svía og náði loksins að finna sigurmarkið í blálok leiksins. Þá fengu Þjóðverjar aukaspyrnu rétt við vítateig Svía. Marco Reus lagði boltann fyrir Toni Kroos sem skoraði með glæsilegu skoti upp í fjærhornið.

Úrslitin þýða að enn er allt opið fyrir lokaumferðina F-riðli. Mexíkó situr í efsta sæti riðilsins með sex stig en Þýskaland og Svíþjóð hafa bæði þrjú stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira