England skoraði fimm í fyrri hálfleik gegn slöku liði Panama og er komið áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kane skorar úr einni vítaspyrnu sinni.
Kane skorar úr einni vítaspyrnu sinni. vísir/getty
England er komið í 16-liða úrslitin á HM í Rússlandi eftir að Englendingarnir rústuðu Panama, 6-1, er liðin mættust í Novgorod í dag.

England er því komið í 16-liða úrslitin ásamt Belgíu upp úr G-riðlinum en liðin eru með sex stig eftir fyrstu tvo leikina. Liðin berjast um efsta sætið í lokaumferðinni.

Það voru ekki nema átta mínútur liðnar er fyrsta markið leit dagsins ljós. Kieran Trippier tók aukaspyrnu sem endaði beint á kolli John Stones og boltinn í netinu.

Á 22. mínútu var staðan orðinn 2-0. Harry Kane skoraði þá af vítapunktinum en um klárt víti var að ræða en á 36. mínútu kom Jesse Lingard Englandi í 3-0 með glæsilegu marki.

Eftir þríhyrningsspil við Raheem Sterling þrumaði Lingaard boltanum í netið af um tuttugu metra færi og Panama í alls konar vandræðum. Veislunni í fyrri hálfleik var þó langt í frá lokið.

Lingaard var afar öflugur í leiknum í dag.vísir/getty
John Stones var aftur á ferðinni á 40. mínútu. Aftur skoraði hann eftir fast leikatriði frá Trippier en föstu leikatriðin hafi verið að gefa Englandi afar vel.

Fimmta markið kom svo í uppbótartíma í fyrri hálfleik en Kane skoraði þá öðru sinni af vítapunktinum. Panama mótmælti mikið en óumfýjanleg ákvörðun hjá gópum egypskum dómara leiksins.

Englendingar bætti við einu marki í síðari hálfleik er Kane fullkomnaði þrennuna á 62. mínútu. Skot Ruben Loftus-Cheek fór í hælinn á Kane og inn. Mínútu síðar var fyrirliðinn kallaður af velli eftir gott dagsverk.

Panama náði hins vegar að klóra í bakkann áður en yfir lauk. Eftir aukaspyrnu náði Felipe Baloy að skora fyrsta mark Panama í sögu HM. Þeir urðu því þjóð númer 74 til þess að skora á HM. Lokatölur 6-1.

Tveir sigrar í tveimur leikjum hjá Englendingum sem líta vel út. Panama voru hins vegar algjörlega hörmulegir og eru verðskuldað á leið heim af HM. Þeir mæta Túnis í lokaumferð riðilsins á meðan Belgía og England berjast um toppsætið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira