Fótbolti

Pétur Örn flýgur heim í aðgerð

Kolbeinn Tumi Daðason í Kabardinka skrifar
Pétur Örn á jogginu með Birki Bjarna hér í Kabardinka.
Pétur Örn á jogginu með Birki Bjarna hér í Kabardinka. Vísir/Vilhelm
Pétur Örn Gunnarsson, einn fjögurra sjúkraþjálfara karlalandsliðsins í knattspyrnu hér í Rússlandi, hélt í dag til Íslands til að fá bót meina sinna eftir hjólreiðaslys á mánudaginn.

Auk þess að fá skrámur á höfði og hné slasaðist Pétur á fingri.

„Vonir eru bundnar við að Pétur komi aftur til starfa á meðan á þátttöku Íslands stendur,“ segir í færslu frá KSÍ á Twitter. Ekki kemur fram hvort einhver komi í staðinn fyrir Pétur. 

Síðasti leikur Íslands í riðlakeppni HM verður á þriðjudaginn í Rostov við Don. Með sigri á Ísland von á að komast upp úr riðlinum en þá verða úrslitin í viðureign Nígeríu og Argentínu að vera hagstæð eins og fjallað hefur verið um.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×