Innlent

Neyðarskeyti flugvélar reyndist koma frá flugskýli

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Akureyrarflugvelli.
Frá Akureyrarflugvelli. Vísir/Völundur
Viðbragðsaðilar voru kallaðir út í gærkvöldi vegna neyðarskeyti sem barst frá flugvél sunnan við Akureyrarflugvöll. Fljótlega kom hins vegar í ljós að skeytið kom frá neyðarsendi í lítilli flugvél í flugskýli á flugvellinum og að engin hætta væri á ferðum.

Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra kemur fram að viðeigandi aðilar hafi verið kallaðir út til að kanna ástæðu þess að neyðarsendirinn fór í gang.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri kom fljótt upp grunur um að skeytið bærist frá biluðum sendi. Sú reyndist raunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×