Tónlist

Múgæsingur í miðborginni: „Biffinn var tekinn og honum var snúið á hvolf“

Bergþór Másson skrifar
Brynjar Barkarson og Aron Kristinn Jónasson á sviðinu á Secret Solstice.
Brynjar Barkarson og Aron Kristinn Jónasson á sviðinu á Secret Solstice. Hlynur Snær Andrason
Raftónlistartvíeykið ClubDub stimplaði sig inn í íslenskt tónlistarlíf með látum á Secret Solstice í gær, þrátt fyrir að hafa ekki einu sinni verið bókaðir á hátíðina. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu nú á dögunum. Hljómsveitin kom fram sem leynigestur á fjórum mismunandi tónleikum á hátíðinni í gær. Eftir hátíðina héldu þeir síðan sitt eigið útgáfuhóf á skemmtistaðnum b5.

Hljómsveitin ClubDub samanstendur af þeim Aroni Kristni Jónassyni og Brynjari Barkarsyni, en lögin eru útsett af ra:tio, sem eru þeir Teitur Helgi Skúlason og Bjarki Sigurðarson. Arnar Ingason, einnig þekktur sem Young Nazareth, sá um hljóðblöndun plötunnar.

Nýr djús fyrir klúbbinn

ClubDub gáfu út sjö laga plötu að nafninu „JuiceMenu“ í síðustu viku. Platan hefur vakið mikla athygli og verið dreift víða á samfélagsmiðlum. Það má segja að hljómsveitin standi undir nafni en Aron Kristinn lýsir tónlistinni þeirra sem „klúbba tónlist“.

Virtir af öðru tónlistarfólki

ClubDub fóru eflaust ekki framhjá Secret Solstice gestum gærdagsins en þeir komu fram fjórum sinnum á hátíðinni. Tónlistarfólkið Huginn, Young Karin, Joey Christ og Birnir buðu þeim að koma fram á sínum tónleikum.

Í samtali við Vísi segir Brynjar Barkarson tónlistarfólkið einfaldlega bara hafa boðið þeim upp á svið og þeir slegið til.

Hér má sjá myndskeið frá því þegar þeir tóku lagið Clubbed Up á tónleikum Birnis.

Fjölmennt á b5

Eftir Secret Solstice héldu þeir drengir síðan útgáfuhóf á skemmtistaðnum b5. Troðfullt var út úr dyrum og beið fólk örvæntingarfullt í röð fyrir utan, í von um að komast inn.

„Þetta var mental, Biffinn var tekinn og honum var snúið á hvolf. Fólk var mætt til að skemmta sér og svo skemmti það sér,“ segir Brynjar. 

Hér má sjá upptökur af umræddu kvöldi.

ClubDub í stuði með guði

Aðspurður um hvað sé framundan hjá ClubDub segir Aron: „við ætlum bara að gera meiri tónlist, hvert sem að vindurinn tekur okkur, þetta er bara í höndum guðs.“ Brynjar segir framhaldið vera einfalt: „Bara meiri djús, obviously.“

Hér að neðan er hægt að hlusta á plötu þeirra félaga á Spotify. 


Tengdar fréttir

Siggi, Arnar, Logi og Litlir svartir strákar

Lífið ræddi við Sigurð Oddsson hönnuð og Arnar Inga Ingason pródúser, samstarfsmenn Loga Pedro Stefánssonar á plötunni Litlir svartir strákar og fengum að skyggnast eilítið í ferlið bakvið útlit plötunnar.

Fjöldi fíkniefnamála í Laugardalnum

Rúmlega þrjátíu manns voru stöðvaðir vegna vörslu fíkniefna. Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer nú fram í Laugardalnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×