Innlent

Gul viðvörun og fólki ráðið frá ferðalögum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kröpp lægð um 100 km norður af Melrakkasléttu gerði sér ferð yfir landið í nótt.
Kröpp lægð um 100 km norður af Melrakkasléttu gerði sér ferð yfir landið í nótt. VÍSIR/GVA
Ekkert ferðaveður verður á austanverðu landinu í dag en búast má við hvassviðri eða stormi í landshlutanum fram yfir hádegi með snörpum vindhviðum við fjöll, víða yfir 30 m/s en yfir 40 m/s á stöku stað. Þá er fólk er beðið um að huga að lausum munum og sýna varkárni, en tjöld, garðhúsgögn og trampólín geta fokið. Að auki má búast við sandfoki, að því er fram kemur í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Kröpp lægð um 100 km norður af Melrakkasléttu gerði sér ferð yfir landið í nótt. Vegna hennar rigndi og hvessti og hefur vindur mælst víða yfir 20 m/s.

Enn á eftir að hvessa um landið norðaustanvert en þá rofar einnig til. Ekki lægir að ráði fyrr en upp úr hádegi og því eru gular viðvarnir í gildi fyrir austurhelming landsins. 

Hægari vindur er vestantil á landinu, 10-15 m/s, en búast má við rigningu eða súld norðvestantil fram eftir morgni. Skýjað að mestu og víða skúrir sunnanlands og síðdegis á Vesturlandi. Heldur hægari vindur og úrkomuminna í kvöld.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:


Suðvestan 5-10, skýjað og stöku skúrir, en bjart með köflum norðan- og austanlands. Hiti 8 til 15 stig að deginum, hlýjast á Austurlandi. 

Á miðvikudag:

Hæg suðvestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, einkum austantil, en dálítil rignig um tíma á Vesturlandi. Hiti breytist lítið. 

Á fimmtudag:

Hæg suðlæg átt og bjartviðri, en gengur í suðaustan 8-13 m/s með rigningu sunnan- og vestanlands síðdegis. Hiti 11 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands. 

Á föstudag:

Hæg sunnanátt og víða dálítil væta en úrkomaulítið norðaustantil. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. 

Á laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir vestlægar áttir með rigningu eða súld með köflum um land allt. Hiti 10 til 15 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×