Fótbolti

Heimir og Aron sátu fyrir svörum í Rostov

Kolbeinn Tumi Daðason í Rostov við Don skrifar
Heimir Hallgrímsson svarar spurningum blaðamanna í dag.
Heimir Hallgrímsson svarar spurningum blaðamanna í dag. vísir/getty
Vísir var með beina lýsingu frá blaðamannafundi íslenska landsliðsins í Rostov í Rússlandi þar sem að landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sitja fyrir svörum.

Strákarnir okkar mæta Króatíu í lokaumferð D-riðils á morgun og verða að vinna en það gæti meira að segja ekki dugað til ef úrslitin verða ekki hagstæð í viðureign Argentínu og Króatíu.

Íslenska liðið þekkir það króatíska inn og út en liðin hafa mæst nokkrum sinnum á undanförnum árum í stórum leikjum í undankeppni EM og HM.

Beina textalýsingu blaðamanns Vísis má lesa hér að neðan. Hér má sjá fundinn í heild sinni.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira
×