Lífið

Camilla Rut gefur út sitt fyrsta lag í júlí

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Camilla Rut er á Snapchat undir nafninu camyklikk og á Instagram undir camillarut.
Camilla Rut er á Snapchat undir nafninu camyklikk og á Instagram undir camillarut. Samsett/Úr einkasafni
Söngkonan og samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut, betur þekkt sem Camy, er að fara að senda frá sér sitt fyrsta lag. Lagið kemur út í júlí en mikil leynd hvílir ennþá yfir verkefninu. Í samtali við Vísi segist Camilla Rut ótrúlega spennt fyrir framhaldinu.

Camilla Rut fór til Los Angeles í byrjun þessa mánaðar til þess að taka lagið upp og á samfélagsmiðlum mátti sjá að með henni í upptökuverinu var meðal annarrra söngkonan Alma Goodman sem varð fyrst fræg með hljómsveitinni Nylon. Sólrún Diego besta vinkona Camillu Rutar var með henni í Los Angeles í þessu verkefni og titlaði sjálfa sig sem sjálfskipaða aðstoðarkonu söngkonunnar.

Dansaði á hælum í 10 tíma

Í gær voru kláraðar upptökur á tónlistarmyndbandi Camillu Rutar en það er Grétar Örn sem sá um tökurnar. Camilla Rut sýndi örlítið frá þessu ferli á samfélagsmiðlum og mátti þar meðal annars sjá þrjá dansara úr myndbandinu. Camilla Rut sagði frá því á Facebook áðan að hún hafi vaknað þreytt og þrútin en þakklát í dag.

„Ég dansaði á háum hælum í u.þ.b 10 tíma.. Ég held smá að fæturnir séu að detta af mér en ég gæti ekki verið stoltari & þakklátari fyrir crewið mitt! Þvílík & önnur eins forréttindi að fá að vinna með svona flottu & frábæru fólki.“

Sólrún Diego var auðvitað á tökustað í gær, vinkonu sinni til halds og trausts. Þar mátti einnig sjá Helgu Sigrúnu danshöfund, Nökkva Fjalar Orrason, Helga Ómarsson ljósmyndara, Jónu Lind Helgadóttur hárgreiðslukonu og Söru Dögg Johansen förðunarfræðing og eiganda Reykjavík Makeup School.  

Camilla Rut hefur tekið þátt í fjölda verkefna á síðustu misserum og söng meðal annars í uppsetningnni á Halloween Horror Show og Moulin Rouge. Hún hélt tónleika fyrir síðustu jól á Hard Rock Café með eiginmanni sínum Rafni Hlíðkvist Björgvinssyni og eru þau einnig að koma fram saman í brúðkaupum og á ýmsum viðburðum.

Söngkonan byrjaði á Snapchat þegar hún var að koma sér upp úr fæðingarþunglyndi eftir að eignast sitt fyrsta barn fyrir nokkrum árum en er nú með yfir 20 þúsund daglega fylgjendur á samfélagsmiðlinum. Hún er einnig með tæplega 20 þúsund fylgjendur á Instagram


Tengdar fréttir

Hef ekki uppskrift að vinsældum

"Ég er með aukakíló og appelsínuhúð og er ekkert að fela það. Við erum jú öll mannleg,“ segir Camilla Rut en hátt í sextán þúsund manns fylgjast með daglegu lífi hennar á Snapchat. Hún er þekkt fyrir skemmtilega og eðlilega framkomu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×