Tónlist

Kendrick Lamar sigrar og Anita Baker heiðruð

Bergþór Másson skrifar
Anita Baker tekur við lífstíðarverðlaunum í gær.
Anita Baker tekur við lífstíðarverðlaunum í gær. Vísir / Getty
BET verðlaunahátíðin fór fram í Los Angeles í gærkvöldi. Jamie Foxx veislustýrði. Childish Gambino, Snoop Dogg og Nicki Minaj sáu um tónlistaratriði kvöldins ásamt öðrum.

Rapparinn Kendrick Lamar fagnaði sigri í verðlaunaflokkunum: hip hop tónlistarmaður ársins og plata ársins.

Söngkonan Anita Baker, sem var gríðarlega vinsæl á níunda áratugnum, var heiðruð fyrir ævistarf sitt.

Hér má lesa allt um tilnefningar og sigurvegara kvöldsins.

Rapparinn Meek Mill frumflutti nýtt lag þar sem hann mótmælir lögregluofbeldi. Einnig minnist hans rapparans XXXTentacion sem var myrtur í síðustu viku. 

 

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×