Innlent

Innkalla tvær tegundir af Squeezy Buddies

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hvorug varan hefur verið í sölu síðan í mars 2018 og engar birgðir eru í verslunum Panduro og A4.
Hvorug varan hefur verið í sölu síðan í mars 2018 og engar birgðir eru í verslunum Panduro og A4. a4
Komið hefur í ljós framleiðslugalli í Squeezy Buddies sem Panduro og A4 seldu. Hvetja Panduro og A4 viðskiptavini til að skila vörunni í verslanir sínar. Varan verður að fullu endurgreidd, að því er fram kemur í tilkynningu frá A4.

„Hvorug varan hefur verið í sölu síðan í mars 2018 og engar birgðir eru í verslunum Panduro og A4.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 420 0020 alla virka daga 08:00-17:00 eða með því að senda póst á panduro@panduro.is.

Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu. Panduro og A4 biðjast velvirðingar á hvers kyns óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×