Lífið

Hjólreiðagarpar gera sig klára fyrir WOW Cyclothon

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
WOW Cyclothon keppnin fer fram 26. til 30.júní. Á meðfylgjandi mynd má sjá þegar Þorvaldur Daníelsson, stofnandi Hjólakrafts, fagnar innilega með einum þáttakandanum við endamarkið í fyrra.
WOW Cyclothon keppnin fer fram 26. til 30.júní. Á meðfylgjandi mynd má sjá þegar Þorvaldur Daníelsson, stofnandi Hjólakrafts, fagnar innilega með einum þáttakandanum við endamarkið í fyrra. Aðsent/Haraldur Jónasson
WOW Cyclothon hefst í dag og mun einstaklingsflokkurinn og Hjólakraftur leggja af stað klukkan 15 frá Öskju. Hóparnir hjóla svo af stað á morgun. Það var mikil spenna í loftinu á upplýsingafundinum í gær og eru hjólreiðakapparnir klárir í að ræst verði í keppninni.

Gæti verið fyrsta konan til að klára einstaklingskeppnina

Í einstaklingskeppninni hjóla keppendur einir síns liðs hringinn í kringum Íslands en fimm keppendur eru skráðir til leiks í ár, þar af einn erlendis frá. Declan Brassil er eini útlendingurinn í einstaklingskeppninni í ár samkvæmt upplýsingum frá WOW. Hann kemur frá Írlandi og hefur ásamt félaga sínum meðal annars klárað Race Across America sem er jafnan kölluð erfiðasta hjólreiðakeppni heims. 

Eiríkur Ingi Jóhannsson, sem sigraði einstaklingskeppnina árið 2016, lenti í öðru sæti 2015 og þriðja sæti 2014, tekur aftur þátt í ár eftir að hafa setið hjá í fyrra. Hinir þrír keppendurnir eru Emil Þór Guðmundsson, Halldór Snorrason og Elín V. Magnúsdóttir. Elín yrði fyrst kvenna til þess að klára einstaklingskeppni WOW Cyclothon. 

Um 150 þátttakendur eru skráðir í sérstökum Hjólakraftsflokki en þetta er í fjórða sinn sem hann hefur verið settur upp. Samtökin Hjólakraftur voru stofnuð árið 2012 með það að leiðarljósi að hjálpa börnum og unglingum sem glíma við lífsstílssjúkdóma eða aðra erfiðleika, líkamlega eða andlega. Á vegum Hjólakrafts eru haldnar æfingar og hjólahópar starfa nú undir nafni samtakanna um allt land.

Keppendur og lið hafa síðustu daga birt myndir frá undirbúningnum eða rifjað upp myndir frá fyrri keppnum. Við munum fylgjast með keppninni hér á Vísi og hefst bein lýsing á morgun. Hér að neðan má sjá brot af þeim myndum sem birtar hafa verið merktar #wowcyclothon á Instagram síðustu daga. Neðst í fréttinni er svo hægt að fylgjast með því sem er að gerast á Instagram og Twitter tengt keppninn. 



Veðrið hefur oft verið betra

Ein með strákunum

Einvígið eftirminnilega frá 2014

Akureyrardætur klárar í slaginn

 
#akureyrardætur #wowcyclothon2018 #wowcyclothon

A post shared by Audur Reynisdottir (@audurreynis) on Jun 26, 2018 at 3:33am PDT

Æft í rigningunni


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×