Viðskipti erlent

Trump segir að Harley-Davidson verði skattlagt sem aldrei fyrr

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Trump tók á móti forsvarsmönnum og starfsmönnum Harley-Davidson fyrr á árinu.
Trump tók á móti forsvarsmönnum og starfsmönnum Harley-Davidson fyrr á árinu. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að ákvörðun mótorhjólaframleiðandans Harley-Davidson að flytja framleiðslu sína fyrir Evrópumarkað frá Bandaríkjunum sé ígildi efnahagslegrar uppgjafar. Segir hann að framleiðsla fyrirtækisins verði „skattlögð sem aldrei fyrr“.

Rekja má ákvörðun Harley-Davidson um að flytja framleiðsluna frá Bandaríkjunum til tolla sem Evrópusambandið hefur lagt á innflutning á mótorhjólum. Tollarnir voru hluti af aðgerðum ESB vegna verndartolla Trumps á innflutt ál og stál.

Forsvarsmenn Harley-Davidson áætla að tollar ESB kosti fyrirtækið 90-100 milljónir dollara á ári. Verð á hverju mótorhjóli muni hækka um 2.200 dollara, jafnvirði um 238 þúsund íslenskra króna, í Evrópu vegna 25 prósenta tolls sem ESB hefur lagt á þau.

Trump gagnrýndi áætlanir Harley Davidson harðlega á Twitter fyrr í dag og varði ákvarðanir bandarískra yfirvalda um verndartolla á innflutt stál og ál.

„Harley Davidson hjól ætti aldrei að vera framleitt í öðru ríki. Aldrei. Starfsmenn þeirra og viðskiptavinir eru nú þegar mjög reiðir við þá. Ef þeir fara þá verður það upphaf endalokanna fyrir þá. Þeir gáfust upp, þeir hættu! Áran verður farin og við munum skattleggja þá sem aldrei fyrr!,“ tísti Trump í dag.

Sagði Trump að áætlanir bandarískra yfirvalda snerust um að fá önnur ríki til að minnka eða leggja niður tolla og viðskiptahindranir sem hafi verið beitt á ósanngjarnan hátt á bandarískar vörur og framleiðslu og hafi bitnað á bændum, verkamönnum og fyrirtækjum. Segir hann að þær áætlanir séu að ganga eftir og markaðir séu að opnast fyrir bandarískar vörur.

Í umfjöllun Financial Times um málið segir hins vegar að flestir viðskiptaríki Bandaríkjanna hafi valið að fara sömu leið og ESB vegna verndartolla Bandaríkjanna. Stefna þeirra sé að svara í sömu mynt fremur en að láta undan kröfum bandarískra yfirvalda.

Harley Davidsson er einn þekktasti mótorhjólaframleiðandi heims.Vísir/Getty

Lýsandi fyrir stöðu bandarískra fyrirtækja vegna stefnu forsetans

Staða Harley-Davidson var orðin nokkuð þröng að mati hagfræðings hjá Peterson-stofnunni sem segir hana lýsandi fyrir þann vanda sem fyrirtæki í Bandaríkjunum standi frammi fyrir vegna stefnu Trump í alþjóðaviðskiptum. Býst hann við að fleiri fyrirtæki muni feta í fótspor Harley Davidson.

Í fyrsta lagi stóð Harley-Davison frammi fyrir hækkandi framleiðslukostnaði vegna tolla á innfluttu áli og stáli, í öðru lagi bitnaði svar ESB-ríkja við tollum Trump á fyrirtækinu á sama tíma og samkeppnisaðilar Harley-Davidson í Evrópu hafi getað nýtt sér hagstæða viðskiptasamninga ESB við stór markaðssvæði á borð við Japan. Því sé ákvörðun framleiðandas um að flytja hluta framleiðslunnar frá Bandaríkjunum skiljanleg.

Framleiðsla Harley-Davidson fer að mestu fram í Wisconsin-ríki Bandaríkjanna. Paul Ryan, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og fulltrúi ríkisins þar, segir að rekja megi ákvörðun framleiðandans beint til verndartolla Trumps.

„Besta leiðin til þess að aðstoða bandaríska verkamenn, neytendur og framleiðendur er að opna nýja markaði, ekki reisa múra fyrir okkar eigin markað,“ sagði Ryan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×