Tónlist

XXXTentacion glímir við eigið lík í nýútgefnu myndbandi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Úr nýju myndbandi XXXTentacion.
Úr nýju myndbandi XXXTentacion. Skjáskot/Youtube
Nýtt tónlistarmyndband rapparans XXXTentacion, sem var myrtur þann 18. júní síðastliðinn, kom út í dag. Myndbandið er nokkuð óhugnanlegt, sérstaklega í ljósi þess að XXXTentacion er nú látinn, en í því sést rapparinn mæta í sína eigin jarðarför, glíma við eigið lík og verður „gamla sjálfinu“ að endingu að bana, eins og segir í skjátextum myndbandsins.

Sjá einnig: XXXTentacion: Stutt og stormasöm ævi lituð ofbeldishneigð og þunglyndi

Myndbandið er gefið út við lagið SAD!, sem skaust í efsta sæti vinsældarlista í Bandaríkjunum eftir að fréttir bárust af andláti rapparans. Í frétt Vulture segir að XXXTentacion hafi sjálfur skrifað handritið að myndbandinu en hann ræddi ætíð opinskátt um baráttu sína við þunglyndi og sjálfsvígshugsanir.

XXXTentacion var tvítugur þegar hann var skotinn til bana í síðustu viku og fjöldi fólks lagði leið sína í minningarathöfn hans í gær. Einn hefur verið handtekinn í tengslum við morðið og þá er tveggja manna, sem grunaðir eru um aðild að málinu, enn leitað.

Utan tónlistarferilsins er XXXTentacion helst minnst fyrir gróft ofbeldi sem fyrrverandi kærasta hans sakaði hann um að hafa beitt sig.

Myndbandið við lagið SAD! má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×