Erlent

Tíu tíma fundur skilaði samkomulagi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fundarmenn funduðu í 10 klukkustundir í þessu litríka herbergi.
Fundarmenn funduðu í 10 klukkustundir í þessu litríka herbergi. EU Council press
Leiðtogar Evrópusambandsins náðu í morgun samkomulagi um framtíðarskipulag flóttamannamála í álfunni. Mikil spenna var á fundinum og hótuðu fulltrúar Ítalíu, sem tekið hafa við þúsundum flóttamanna á árinu, að fella allar tillögur sem kæmu upp á leiðtogafundinum ef ríki þeirra fengi ekki aðstoð í málaflokknum.

Þá höfðu Póland, Ungverjaland og önnur ríki Mið-Evrópu þvertekið fyrir að axla aukna ábyrgð í flóttamannamálum.

Umræðurnar um flóttamannamálin stóðu alls yfir í um 10 klukkustundir og lauk ekki fyrr en á fjórða tímanum í morgun - með samkomulagi sem fyrr segir.

Það er meðal annars sagt kveða á um að auka gæslu á ytri landamærum Evrópusambandsins, sem og að létta álaginu af löndum eins og Grikklandi, Spáni og Ítalíu sem eru fyrsti áfangastaður flestra flóttamanna.

Lítið hefur lekið út um nákvæm efnisatriði samningsins. Blaðamenn Guardian telja þó að hann feli í sér uppsetningu landamærastöðva í Norður-Afríku, þangað sem flóttamenn skulu leita til að sjá hvort þeir uppfylli skilyrði um hælisumsókn í Evrópu. Sjóðir Evrópusambandsins verði notaðir til að greiða fyrir uppsetninguna, sem og til að „sannfæra“ ríki Norður-Afríku um ágæti fyrirkomulagsins. Ekkert hefur komið fram sem bendir til samstarfsvilja ríkjanna á þessari stundu.

Samkomulagið á einnig að fela í sér uppsetningu sambærilegra stöðva í ríkjum sambandsins. Stjórnvöldum ríkjanna er þó í sjálfsvald sett hvort þeim verði komið á laggirnar en sveigjanleikinn er talinn verið svar við andstöðu fyrrnefndra ríkja.

Sjá einnig: Úrslitastund fyrir Evrópusambandið og þýsku ríkisstjórnina

Þar að auki er samningurinn sagður fela í sér aukna þátttöku annarra ríkja ESB í björgun flóttamanna á Miðjarðarhafi. Nákvæm útlistun á því hvernig þau skuli gert liggur þó ekki fyrir. Að sama skapi eigi að reyna að leysa upp smyglhringina, sem margir hverjir flytja flóttamenn á hriplekum kænum yfir Miðjarðarhafið.

Breska ríkisútvarpið segir jafnframt að samningurinn kveði á um takmarkanir á ferðafrelsi flóttamanna milli Evrópusambandsríkja.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði eftir fundinn að enn væri mikil vinna framundan. Engu að síður gæfu niðurstöður fundarins góð fyrirheit. Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, sagði að hin samevrópska hugsjón hafi staðið upp sem sigurvegari eftir nóttina.

Markaðir tóku að sama skapi vel í fregnir af samkomulagi, en evran styrktist um 0,6 prósent eftir að fundinum var slitið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×