Lífið

Joe Frazier hættur í rapphópnum KBE

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Herra Hnetusmjör og Joe Frazier saman á góðri stund.
Herra Hnetusmjör og Joe Frazier saman á góðri stund. Vísir
Taktsmiðurinn Joe Frazier hefur sagt skilið við rapphópinn KBE. Joe Frazier hefur unnið náið með rapparanum Herra Hnetusmjör frá árinu 2014 og meðal annars samið takta fyrir tónlist sem hann hefur gefið út.

Í rapphópnum KBE eru tónlistarmennirnir Herra Hnetusmjör, Joe Frazier, Birnir og Huginn. Í tilkynningu frá Herra Hnetusmjör óskar hann Joe alls hins besta í komandi verkefnum.

Í tilkynningu frá Joe Frazier sjálfum, sem hann birti á samfélagsmiðlinum Instagram, kemur fram að hann vilji taka sér pásu. Hann segist ekki hafa fundið fyrir sama metnaði og áður og þar að auki sé ýmislegt í hans persónulega lífi sem hann þurfi að leysa úr til þess að vera hamingjusamur í framtíðinni. Hann segist ekki vita hversu lengi hann ætli að taka sér pásu eða hvenær hann muni næst gefa út lag og að hann þurfi aðeins að „kúpla frá og vinna í sjálfum mér“.

Tilkynningu Joe Frazier má sjá hér að neðan.



A post shared by Joe Frazier (@johannfrazier) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×