Fótbolti

Greip um meiddu öxlina á Salah og bað um selfie

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Mo Salah
Mo Salah vísir/getty
Mohamed Salah er í kappi við tímann og er alls óvíst hvort hann verði klár í slaginn þegar flautað verður til leiks á HM í Rússlandi en hann er enn að jafna sig af axlarmeiðslum sem hann hlaut í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á dögunum.

Egyptaland mætir Úrugvæ næstkomandi föstudag í afar mikilvægum leik en hinar þjóðirnar í riðlinum eru Rússland og Sádi-Arabía. Egyptar eygja þess von að komast upp úr riðlinum en ljóst er að í þeirri baráttu munar mikið um Salah.

Egypskur knattspyrnuáhugamaður er því væntanlega ekki vinsælasti maðurinn þar í landi eftir að hafa verið aðeins of aðgangsharður þegar hann sóttist eftir því að ná sjálfsmynd af sér með Salah.

Hann greip þá utan um Salah en augljóslega má sjá á viðbrögðum Salah að það var ekki æskilegt enda öxlin viðkvæm.

Atvikið náðist á myndband eins og sjá má hér fyrir neðan. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×